Skip to main content

Reykjavíkurborg 240 ára: Birting menningar

Reykjavíkurborg 240 ára: Birting menningar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. apríl 2026 13:00 til 15:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nemendum í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands efna til ráðstefnu í tilefni af 240 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Nemendur flytja fyrirlestra sem tengjast birtingu menningar í Reykjavík á einhvern hátt, en þar er sannarlega af nægu að taka.

Haldið í Sjóminjasafninu í Reykjavík, þriðjudaginn 14. apríl kl. 13:00–15:00. 

Dagskrá:

  • Gerum það sjálf! Listamannarekin sýningarrými í Reykjavík - Þórhallur Guðmundsson
  • Gamlar ljósmyndir á Facebook - Ásdís Magnea Egilsdóttir
  • Sjoppur - dauði og endurfæðing - Hildur Sigurbergsdóttir
  • Gamaldags góðgæti - Guðríður Eldey Arnardóttir
  • Sundlaugin sem menningarlegt og félagslegt rými - Þórunn Lilja Arnórsdóttir.
  • Reykvískt bíó, aldarminning: Um áhrif kvikmynda á borgarlíf - Þór Martinsson.

Hlé

  • Tónleikahald í Reykjavík: Frá samkomuhúsum til stórviðburða - Nanna Guðrún Sigurðardóttir
  • Hverra manna ert þú? - Stefnumótamenning - Sunna Sigurveig Thorarensen
  • Þróun matvöruverslunar í Reykjavík - Baldvin Már Baldvinsson
  • Textíll og myndlist - Alda Ægisdóttir
  • Úr baðstofu í Borgarleikhús - Stefanía Ragnarsdóttir

Í kjölfar fyrirlestranna verður boðið upp á umræðutíma þar sem áhorfendum gefst tækifæri til að spyrja fyrirlesara út í umfjöllunarefni þeirra.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar!

Sjá einnig á Facebook.

Nemendum í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands efna til ráðstefnu í tilefni af 240 ára afmæli Reykjavíkurborgar.

Reykjavíkurborg 240 ára: Birting menningar