Frestur til að sækja um Erasmus+ styrki til starfsþjálfunar er til og með 1. apríl ár hvert (eða næsta virka dag ef umsóknarfrestur er á almennum frídegi). Heimilt er að sækja um eftir auglýstan umsóknarfrest en þeir sem sækja um fyrir 1. apríl hafa forgang við úthlutun styrkja. Sótt er um styrkinn til Alþjóðasviðs. Einnig þarf ábyrgðaraðili deildar/fags eða leiðbeinandi að gefa samþykki sitt fyrir starfsþjálfuninni en það er gert með undirritun skjalsins hér að neðan Lýsing og ávinningur starfsþjálfunar. Nemendur sem hyggja á starfsþjálfun þurfa að sinna árlegri skráningu líkt og aðrir nemendur og greiða skráningargjald við HÍ. Hægt er að skrá sig án þess að velja námskeið fyrir komandi skólaár og er starfsþjálfunarnemum ráðlagt að gera það. Umsóknarferlið Nemandi finnur sér starfsþjálfunarstöðu sem tengist náminu. Hægt er að hafa samband við háskóla, fyrirtæki eða stofnun og óska eftir starfsþjálfun eða sækja um auglýsta starfsþjálfun. Nemandi fyllir út rafræna umsókn og tilgreinir í hversu langan tíma dvölin er áætluð. Nemandi útbýr Starfsþjálfunarsamning Samninginn skal prenta út og fá undirritaðan af ábyrgðaraðila deildar/fags eða leiðbeinanda, auk alþjóðafulltrúa í deild. Einnig þarf að fá undirskrift frá gestastofnun. Undirrituðum samningi er svo skilað til Alþjóðasviðs. Athugið að þessu þarf að ljúka að lágmarki einum mánuði fyrir brottför. Umsókn um styrk Umsókn um Erasmus+ starfsþjálfunarstyrk 2024-2025 - Fyrir dvöl á tímabilinu 1. júní 2024 - 31. ágúst 2025Umsókn um Erasmus+ starfsþjálfunarstyrk 2023-2024 - Fyrir dvöl á tímabilinu 1. september 2023 - 31. maí 2024 Fylgiskjöl eru hengd við umsókn: Skannað einkunnayfirlit (ekki meira en mánaðargamalt) Skjalið Lýsing og ávinningur starfsþjálfunar undirritað af ábyrgðaraðila deildar/fags eða leiðbeinanda Nemendur geta sótt um viðbótarstyrki úr Erasmus+ áætluninni s.s: Styrkir vegna fötlunar eða veikinda Styrkir fyrir nemendur með börn á framfæri Styrkir vegna dýrra ferðalaga Með því að senda inn umsókn gefa nemendur Alþjóðasviði leyfi til þess að nota þær upplýsingar sem gefnar eru upp í umsókninni og koma fram á fylgigögnum við úrvinnslu umsóknarinnar. Þessar upplýsingar eru geymdar ótímabundið. facebooklinkedintwitter