Skip to main content

Umsókn um starfsþjálfunarstyrk

Umsóknarfrestir fyrir umsóknir um Erasmus+ styrki til starfsþjálfunar eru tveir, 15. maí og 15. nóvember ár hvert (eða næsta virka dag ef umsóknarfrestur er á almennum frídegi). 
Umsóknarfrestur fyrir dvalir sem hefjast á haustmisseri: 15. maí
Umsóknarfrestur fyrir dvalir sem hefjast vor og sumar: 15. nóvember 

Umsóknir sem berast fyrir frest fá forgang. Tekið er við umsóknum eftir umsóknarfresti sem er þá svarað jafn óðum, og styrkjum er þá úthlutað ef nægt fjármagn er til. Æskilegt er að umsóknir berist til Alþjóðasviðs minnst 8 vikum fyrir áætlaða brottför og umsóknum sem berast innan 6 vikna frá áætlaðri brottför verður synjað. Nemendur sem eru að brautskrást verða að sækja um styrkinn eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir brautskráningu. Ekki er tekið á móti umsóknum um styrkinn ef sótt er um eftir þann frest.

Sótt er um styrkinn til Alþjóðasviðs. Einnig þarf tengiliður deildar/fags að gefa samþykki sitt fyrir starfsþjálfuninni. Það er gert við undirritun starfsþjálfunar námssamningsins sem er fylgiskjal með umsókninni um styrkinn. 

Ekki er tekið við umsóknum ef áætluð brottför er innan sex vikna. Nemendur eru hvattir til þess að sækja um að minnsta kosti þremur mánuðum fyrir brottför.

Nemendur sem hyggja á starfsþjálfun þurfa að sinna árlegri skráningu líkt og aðrir nemendur og greiða skráningargjald við HÍ. Hægt er að skrá sig án þess að velja námskeið fyrir komandi skólaár og er starfsþjálfunarnemum ráðlagt að gera það. Nemendur sem hyggja á starfsþjálfun eftir útskrift eru undanþegnir þessu.