Skip to main content
3. júní 2025

Páls Skúlasonar rektors minnst á heiðursmálþingi

Páll Skúlason

Háskóli Íslands stendur fyrir síðdegismálþingi í minningu Páls Skúlasonar, prófessors og fyrrverandi rektors, þann 4. júní í Hátíðasal háskólans. Tilefnið er afmæli Páls Skúlasonar, sem hefði orðið 80 ára þann dag.

Páll var ekki aðeins áhrifamikill heimspekingur heldur einnig farsæll rektor Háskóla Íslands á árunum 1997 til 2005. Á meðan hann gegndi embætti rektors lagði hann mikla áherslu á að efla akademískt frelsi og gagnrýna hugsun innan háskólasamfélagsins. Verk hans og hugmyndir hafa haft varanleg áhrif á íslenskt samfélag, háskóla og heimspekina.

Á málþinginu flytur fyrrverandi samstarfsfólk, nemendur og vinir Páls fræðileg erindi sem snerta heimspeki og verk Páls. Á meðal helstu viðfangsefna hans voru stjórnmál og lýðræði, siðfræði náttúrunnar, hlutverk háskóla, siðfræði og gagnrýnin hugsun, verufræði, merking og tilgangur.

Málþingið hefst kl. 13 í Hátíðasal skólans og lýkur með léttum veitingum um 16.30. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á að heiðra minningu Páls Skúlasonar og hans mikilvægu framlagi til heimspekinnar og háskólasamfélagsins.

Siðfræðistofnun og Heimspekistofnun sjá um framkvæmd málþings í samvinnu við fjölskyldu Páls.

Dagskrá málþingsins

Páll Skúlason

Háskóli Íslands stendur fyrir síðdegismálþingi í minningu Páls Skúlasonar, prófessors og fyrrverandi rektors, þann 4. júní í Hátíðasal háskólans. Tilefnið er afmæli Páls Skúlasonar, sem hefði orðið 80 ára þann dag. MYND/Kristinn Ingvarsson