Ægir Örn Sigurgeirsson, MA frá Félagsráðgjafardeild
„Mér lék forvitni á að vita hvernig áfallavinnu væri háttað innan skólanna þegar sjálfsvíg eða sjálfsvígstilraun á sér stað og hvort forvarnarþættinum væri sinnt nægilega vel,“ segir Ægir Örn Sigurgeirsson, sem lauk meistaraprófi í félagsráðgjöf til starfsréttinda vorið 2012. Í lokaverkefni sínu rannsakaði hann verkferla innan grunnskóla Hafnarfjarðar þegar slíkt áfall dynur á nærsamfélaginu.
Ægir Örn segir að undanfarna þrjá áratugi hafi mörg ungmenni í bænum fallið fyrir eigin hendi, sem er gríðarlega mikið áfall fyrir samfélagið. Hann telur grunnskólakerfið gegna lykilhlutverki í fyrstu greiningu á andlegum og félagslegum vanda barna. „Þar ættu fyrstu inngrip að eiga sér stað,“ segir hann.
Ægir Örn Sigurgeirsson
„Mér lék forvitni á að vita hvernig áfallavinnu væri háttað innan skólanna þegar sjálfsvíg eða sjálfsvígstilraun á sér stað og hvort forvarnarþættinum væri sinnt nægilega vel.“

Hann segir niðurstöður rannsóknarinnar hafa verið tiltölulega jákvæðar og að þeir skólar sem hann skoðaði væru með mjög góðar áætlanir og verkferla. „Hins vegar vantaði dálítið upp á eftirfylgd við nemendur og starfsfólk skólanna þegar leið frá atburðinum,“ segir hann. „Forvörnum virðist vera beitt án þess að nefna beint sjálfsvíg við nemendur og frekar er reynt að vinna með sjálfsmyndina til að styrkja nemendurna sem einstaklinga.“
Niðurstöðurnar leiddu einnig í ljós að engin samvinna var á milli skólanna í bæjarfélaginu um forvarnir eða áfallaaðstoð. Allir viðmælendur töluðu þó um að mikilvægt væri að deila upplýsingum sín á milli. „Vonandi hafa þau gert það því að það verður að halda umræðunni gangandi svo að efla megi forvarnir gegn sjálfsvígum barna og ungmenna,“ segir Ægir Örn.
Leiðbeinandi: Hrefna Ólafsdóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild.