Skip to main content

Umhverfismál móta rekstur tryggingarfélaga

Lára Jóhannsdóttir, doktorsnemi við Viðskiptafræðideild

„Þrátt fyrir að umhverfismál móti rekstrarumhverfi fyrirtækja, og hafi þannig bein og óbein áhrif á viðskiptalífið, hafa tengsl þeirra við viðskiptalífið verið lítt rannsökuð hér eða sett í stærra samhengi,“ segir Lára Jóhannsdóttir, doktorsnemi í Viðskiptafræðideild. Þverfagleg rannsókn hennar beinist að norrænum vátryggingafélögum og umhverfisáhrifum á starfsemi þeirra.  Lára hefur langa reynslu af starfi vátryggingafélaga og fléttar hana inn í rannsóknir sínar. Að sögn Láru er rannsókninni ætlað að kanna mikilvægi umhverfisstjórnunar fyrir rekstur vátryggingafélaga.
 

Lára Jóhannsdóttir

„Áhrif loftslagsbreytinga á rekstur vátryggingafélaga verða bæði bein og óbein. Bein áhrif eru vegna áhættu sem vátryggingafélög hafa sjálf tekið að sér að tryggja, en óbein áhrif munu stafa af tíðari og alvarlegri tjónum sem dreifast á endurtryggjendur og geta leitt til lakari viðskiptakjara en áður.“

Lára Jóhannsdóttir

„Á undanförnum áratugum hefur áhersla á umhverfismál farið vaxandi alþjóðlega. Það stafar m.a. af auknum áhyggjum af mengun, afleiðingum loftslagsbreytinga, aukinni efnanotkun, erfðabreyttum lífverum og tapi á líffræðilegri fjölbreytni,“ segir Lára og bætir við: „Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru taldar ein alvarlegasta áskorun mannkynsins, en þær munu valda óhagstæðu og öfgakenndu veðurfari sem eykur rekstrarlega áhættu vátryggingafélaga. Tjón af umhverfisvöldum hafa nú þegar áhrif víða um heim. Kröfur á hendur vátryggingafélögum vegna veðurfarstengdra hamfara, s.s. fellibylja og flóða, hafa aukist jafnt og þétt. Á það við um eignatjón og mannskaða. Á Norðurlöndum er birtingarmyndin m.a. ofsaveður, skýfall, hitabylgjur og flóð, auk þess sem breytt veðurfar veldur ótímabærum skemmdum á húsum sem rýrir virði þeirra,“ segir Lára.

Niðurstöður nýtast stjórnvöldum
Lára segir að jafnvel þótt norræn vátryggingafélög séu starfrækt þar sem síður gæti afleiðinga loftslagsbreytinga, en víða annars staðar, séu þau engu að síður hluti af hnattrænu vátryggingakerfi. „Áhrif loftslagsbreytinga á rekstur vátryggingafélaga verða bæði bein og óbein. Bein áhrif eru vegna áhættu sem vátryggingafélög hafa sjálf tekið að sér að tryggja, en óbein áhrif munu stafa af tíðari og alvarlegri tjónum sem dreifast á endurtryggjendur og geta leitt til lakari viðskiptakjara en áður.“

Lára segir að samtök norrænna vátryggingafélaga séu farin að beina sjónum að afleiðingum loftslagsbreytinga og hvað vátryggingafélögin getigert til að draga úr neikvæðum afleiðingum þeirra. „Þorri vátryggingafélaga er þó enn frumkvæðislítill þegar kemur að loftslagsmálum. Æskilegt er að á skömmum tíma snúist þetta við og að þau taki aukið frumkvæði í þessum málum,“ segir Lára.

Að sögn Láru hefur rannsóknin fræðilegt og hagnýtt gildi. „Niðurstöðurnar munu nýtast stjórnvöldum þegar kemur að stefnumörkun á sviði umhverfismála, svo og vátryggingageiranum í að endurskoða verklag og starfshætti á sviði umhverfismála. Þannig verði unnt að draga úr tjónum og skapa ný tækifæri með framboði á nýjum vátryggingategundum,“ segir Lára.

Leiðbeinendur: Snjólfur Ólafsson, prófessor við Viðskiptafræðideild, Brynhildur Davíðsdóttir, dósent við Hagfræðideild, og Michael E. Goodsite, prófessor við Danish National Environmental Research Institute, Árósaháskóla.