Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, dósent við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild
Háskólanám fyrir fólk með þroskahömlun er nýnæmi hér á landi en haustið 2007 var tveggja ára starfstengdu diplómanámi fyrir þennan hóp komið á fót við Kennaraháskóla Íslands, nú Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ríflega helmingur námsins er starfstengdur og hafa alls 38 nemendur útskrifast úr því. Námið hefur enn ekki öðlast formlegan sess innan háskólans en það hefur verið skipulagt sem rannsóknatengt tilraunaverkefni.
Guðrún Valgerður Stefánsdóttir
„Rannsóknin á atvinnuþátttöku ungs fólks með þroskahömlun leiddi í ljós að um 70% útskrifaðra nema eru í starfi sem tengist náminu. Ýmist starfa þeir í leikskólum, á frístundaheimilum, í umönnunarstörfum eða við réttindagæslu fatlaðs fólks,“

Ágústa Björnsdóttir, meistaranemi í uppeldis- og menntunarfræði, og Helena Gunnarsdóttir, meistaranemi í þroskaþjálfafræði, fengu styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að rannsaka atvinnuþátttöku útskrifaðra diplómanema. „Rannsóknin á atvinnuþátttöku ungs fólks með þroskahömlun leiddi í ljós að um 70% útskrifaðra nema eru í starfi sem tengist náminu. Ýmist starfa þeir í leikskólum, á frístundaheimilum, í umönnunarstörfum eða við réttindagæslu fatlaðs fólks,“ segir Guðrún V. Stefánsdóttir, dósent í fötlunarfræðum, sem haft hefur umsjón með tengingu námsins við rannsóknir.
Sú rannsókn sem hér er fjallað um er liður í stærra rannsóknaverkefni á vegum Rannsóknastofu í þroskaþjálfafræði. Guðrún segir að þessi rannsókn sé mikilvægt skref í að kanna hvort og með hvaða hætti námið nýtist nemendum á vinnumarkaði, hvernig þeim hefur vegnað þann tíma sem liðinn er frá útskrift og hvernig félagslegri þátttöku þeirra á vinnustöðunum er háttað. „Niðurstöðurnar eru þarft innlegg í fræðilega og faglega umræðu um þróun háskólanáms fyrir fólk með þroskahömlun hér á landi, sem og í alþjóðlegu samhengi. Enn fremur hefur rannsókn sem þessi gildi fyrir umræðu um samfélagslegt hlutverk háskóla. Vonandi verða niðurstöðurnar hafðar að leiðarljósi þegar ákvarðanir um áframhald námsins verða teknar,“ segir Guðrún.