Tölvunarfræði er þverfaglegt svið sem tengist öðrum fræðasviðum. Tölvur eru mannlegri en marga grunar og innan tölvunarfræði við Háskóla Íslands eru samskipti manns og tölvu rannsökuð. Þetta er þverfræðilegt svið sem tengir tölvunarfræði við önnur fræðasvið og stuðlar að betri lífsgæðum fatlaðra einstaklinga í þjóðfélaginu.
Ebba Þóra Hvannberg, prófessor í tölvunarfræði, hefur á undanförnum árum rannsakað samskipti manns og tölvu og er þreifistafur fyrir blinda eitt þeirra rannsóknarefna sem hún hefur unnið að. Markmiðið er að endurbæta samskipti blindra og tölvu, t.d. í þeim tilgangi að auka aðgengi blindra að stærðfræði. Þetta segir Ebba Þóra mikilvægt skref í þá átt að auka lífsgæði blindra.
„Verið er að gera tilraunir með hvernig blindir geta notað önnur skynfæri en sjónina til að skynja hluti. Þá er þreifing og snerting í aðalhlutverki, en hljóð og tali er bætt við til að auka enn möguleika nemenda. Í stað þess að horfa á föll eða hluti, þá þreifa blindir á þeim með þreifistafnum, hlusta á leiðbeiningar eða hljóð sem leiðir þá áfram í skoðun á hlutnum."
Þreifistafurinn er eins konar tækniútgáfa af blindrastaf sem tengdur er við tölvu. „Sú tegund sem við höfum mest notað er þannig að notandinn stýrir eins konar penna á armi," útskýrir Ebba Þóra.
Ebba Þóra Hvannberg, prófessor
„Verið er að gera tilraunir með hvernig blindir geta notað önnur skynfæri en sjónina til að skynja hluti. Þá er þreifing og snerting í aðalhlutverki, en hljóð og tali er bætt við til að auka enn möguleika nemenda. Í stað þess að horfa á föll eða hluti, þá þreifa blindir á þeim með þreifistafnum, hlusta á leiðbeiningar eða hljóð sem leiðir þá áfram í skoðun á hlutnum."

„Þegar notandinn hreyfir pennann er eins og hann þreifi á yfirborði einhvers hlutar, t.d. kúlu eða ferils." Notkunarmöguleikar stafsins eru margir og nýtist hann m.a. við að þreifa á ýmsum hlutum og er því ekki bundinn við stærðfræðikennslu. „Hægt er að nota hann til að finna staði á korti, læra stjörnufræði o.fl. Það er líka spennandi að sjá hvort þreifistafurinn muni ekki einnig gagnast sjáandi við nám." Þá eru í gangi ýmsar rannsóknir og nýverið hafa rannsóknarhópar beint sjónum að því hvernig slík tækni getur orðið til að efla félagsleg tengsl fólks.
Þegar verið er að þróa tækni á borð við þreifistafinn segir Ebba Þóra nauðsynlegt að vera í samstarfi við vísindamenn á sviði sálfræði og félagsfræði. „Einnig getur verið nauðsynlegt að vera í samstarfi við sérfræðinga í viðfangsefni sem í tilfelli rannsókna okkar á þreifistafnum er menntun. Þannig reynum við að tengja margar fræðigreinar í rannsóknum á hvernig blindir geta notað þreifistafinn til að ná betri tökum á stærðfræði."