Skip to main content

Þróa augnlinsur sem ferja lyf

Kristinn Guðnason, doktorsnemi við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

„Við erum að rannsaka getu augnlinsa og gerviaugnsteina sem lyfjaflutningsgjafa í evrópsku samstarfsverkefni,“ segir Kristinn Guðnason, doktorsnemi í reikniverkfræði. Hann er í teymi sem vinnur að þróun á stærðfræðireiknilíkani sem lýsir lyfjafræðilegum eiginleikum í lyfjaflutningstækjum eða lyfjaferjum.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, lyfjafræðihópa frá Portúgal og gerviaugnsteinaframleiðanda í Belgíu.

„Þróun hentugra lyfjaflutningsefna er tímafrek og kostnaðarsöm og því er hjálplegt að hafa reiknilíkan sem getur veitt innsæi,“ segir Kristinn en með líkaninu er unnt að spara bæði fjármagn og tíma. „Með líkanagerðinni reynum við að meta út frá gögnum, sem fást úr tilraunum, á hvaða hátt lyfjaflutningur geti átt sér stað. Slík innsýn getur dregið úr þörfinni á frekari kostnaðarsömum tilraunum.“

Kristinn segir að unnt sé að útvíkka líkanið, eins og kallað er, en þá getur það fengist við fleiri aðstæður í lyfjaflutningi. „Þegar lyfjafræðilegir eiginleikar efnis eru þekktir er hægt að spá fyrir um aðstæður sem erfitt væri að mæla, t.d. þegar lyfjaflutningstæki er komið inn í líkamann.“

Ekki þarf að fjölyrða um hagkvæmnina og þægindin fyrir notandann sem gætu hlotist af því ef aðferðirnar sem verið er að prófa skila árangri. Ekki þarf þá meira en að setja linsuna í augað til að lyfið fari rétta leið inn í líkamann.

„Með líkanagerðinni reynum við að meta út frá gögnum, sem fást úr tilraunum, á hvaða hátt lyfjaflutningur geti átt sér stað. Slík innsýn getur dregið úr þörfinni á frekari kostnaðarsömum tilraunum.“

Kristinn Guðnason

Kristinn segir að tilraunir hafi þegar verið gerðar á samsetningu lyfs og linsuefnis. „Reikniaðferð sem við höfum þróað hefur reynst dýrmæt í líkani sem við beitum. Með aðferðinni er fengin innsýn í viðeigandi eðlisfræðilega ferla sem lýsa hegðun þess efnis sem verið er að kanna.“

Verkefnið sem Kristinn vinnur að er skýrt dæmi um gildi þverfræðilegrar samvinnu ólíkra rannsóknasviða, en um er að ræða mjög kröftugt samstarf milli vélaverkfræði og lyfjafræði. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu sem gerir teyminu kleift að vinna saman að þessu þverfaglega og fjölþjóðlega verkefni.

Leiðbeinendur: Fjóla Jónsdóttir prófessor og Sven Þ. Sigurðsson, prófessor emeritus, bæði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, og Már Másson, prófessor við Lyfjafræðideild.