Sunna Dís Kristjánsdóttir, BA-nemi við Uppeldis- og menntunarfræðideild
Með skátastarfi er stefnt að því að skapa ungu fólki skilyrði til að nýta hæfileika sína á uppbyggjandi hátt. Starfið á að verða því hvatning til að nýta eigin reynslu og verða þannig heilsteyptir einstaklingar og virkir samfélagsþegnar. Sunna Dís Kristjánsdóttir, BA-nemi við Menntavísindasvið, vann í sumar rannsókn í samstarfi við unga skáta og með henni gerði hún tilraun til að varpa ljósi á svokallaða borgaravitund þeirra. Borgaravitund hefur nokkuð verið rannsökuð á Menntavísindasviði, m.a. af Sigrúnu Aðalbjarnardóttur prófessor, sem segir að félagsþroski og samskiptahæfni, siðferðiskennd og jákvæð sjálfsmynd séu undirstaða þroskaðrar borgaravitundar.
„Ég kannaði hversu virkan þátt ungmennin eiga í lýðræðislegum ákvarðanatökum innan skátahreyfingarinnar og hversu þungt skoðanir þeirra vega,“ segir Sunna Dís um rannsókn sína sem hún hlaut styrk til úr Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Sunna Dís Kristjánsdóttir
„Ég kannaði hversu virkan þátt ungmennin eiga í lýðræðislegum ákvarðanatökum innan skátahreyfingarinnar og hversu þungt skoðanir þeirra vega.“

„Meðlimur í vinnuhópnum Rödd ungra skáta leitaði til mín með verkefni í huga og hvatti mig til að sækja um rannsóknastyrk. Hópurinn hugðist síðan vinna áfram með niðurstöðurnar og móta út frá þeim stefnu fyrir skátahreyfinguna,“ segir Sunna Dís.
Hún segir að borgaravitund og sjálfboðastarf séu hluti af sömu heild og hafi lengi verið henni hjartans mál. „Með rannsókninni fékk ég tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi og kanna málaflokkinn nánar hér á landi.“
Sunna Dís segir að ungmennin sem tjáðu sig í rannsókninni hafi fullyrt að markmið þeirra með þátttöku í skátastarfi væri öðru fremur að hafa áhrif á næstu kynslóð, gjalda greiða og ala upp sjálfstæða einstaklinga framtíðarinnar. „Jafnframt töldu þau að forsenda þátttöku og tækifæra til áhrifa væri að vera virkur skáti, hafa rödd, sýna áhuga og viðleitni.“
Sunna Dís segir að helsti vísindalegi ávinningur rannsóknarinnar sé nýsköpunargildi. „Markmið sjálfboðastarfs er m.a. að gera ungmenni að sjálfstæðum, virkum og ábyrgum einstaklingum í þjóðfélaginu og því er mikilvægt að fá nánari upplýsingar um hversu vel vinnan raunverulega skilar sér, bæði til samfélagsins í heild og í daglegu lífi.“
Leiðbeinandi: Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjunkt við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild.