Jóhanna Bernharðsdóttir, doktorsnemi við Hjúkrunarfræðideild
„Ég hef lengi haft áhuga á geðheilbrigði kvenna og forvörnum þar að lútandi. Þegar ég var í meistaranámi við Minnesota-háskóla var prófessorinn minn, Verona Gordon, að vinna að meðferð fyrir þunglyndar konur. Hún byggði hana m.a. á hugrænni atferlismeðferð sem þá var að ryðja sér til rúms. Þessi nálgun átti síðan eftir að skila góðum árangri," segir Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor og doktorsnemi við Hjúkrunarfræðideild. „Sjálf beini ég sjónum að sálrænni vanlíðan sem vísar til þunglyndis- og kvíðaeinkenna án þess að um sjúkdóm sé að ræða. Mér finnst afar mikilvægt að við þróum leiðir til að greina og grípa inn í slíka líðan m.a. til að koma í veg fyrir að sjúklegt ástand þróist."
Jóhanna Bernharðsdóttir
Tilgangur rannsóknarinnar er tvíþættur að sögn Jóhönnu; annars vegar að kanna tíðni sálrænnar vanlíðunar meðal kvenstúdenta við Háskóla Íslands og hins vegar að þróa og forprófa forvarnanámskeið til að efla geðheilbrigði og koma í veg fyrir þróun frekari vanlíðunar.

Tilgangur rannsóknarinnar er tvíþættur að sögn Jóhönnu; annars vegar að kanna tíðni sálrænnar vanlíðunar meðal kvenstúdenta við Háskóla Íslands og hins vegar að þróa og forprófa forvarnanámskeið til að efla geðheilbrigði og koma í veg fyrir þróun frekari vanlíðunar. „Ég hef þær væntingar að niðurstöðurnar varpi ljósi á sálræna líðan íslenskra kvenstúdenta og hvaða þætti sé mikilvægt að vinna með til að koma í veg fyrir þróun vanlíðunar eða jafnvel sjúkdóma," segir Jóhanna, sem vonar að rannsóknin verði innlegg í geðheilbrigðisþjónustu og forvarnir sem hægt verði að bjóða upp á í framtíðinni fyrir námsfólk. „Aukin vísindaleg þekking á þáttum sem kunna að hafa áhrif á geðheilbrigði þessa hóps og mat á árangri forvarna gæti bæði nýst vísindasamfélaginu og almenningi."
Leiðbeinendur: Rúnar Vilhjálmsson, prófessor við Hjúkrunarfræðideild, og Jane Dimmitt Champion, aðstoðarprófessor við University of Texas.