Skip to main content

Örtækni gæti breytt meðferð á augnsjúkdómum

Phatsawee Jansook, doktorsnemi við Lyfjafræðideild

„Með auknum lífslíkum og vaxandi tíðni sykursýki meðal Vesturlandabúa hefur blinda vegna aldurstengdrar hrörnunar augnbotna og sykursýki farið sívaxandi og er nú algengasta ástæða blindu í þróuðum ríkjum," segir Phatsawee Jansook, doktorsnemi við Lyfjafræðideild.

„Hvorttveggja eru sjúkdómar sem herja á sjónhimnu og bakhluta augans. Það getur verið mjög erfitt að meðhöndla slíka sjúkdóma með hefðbundinni lyfjagjöf eins og augndropum. Þess vegna verður oft að sprauta lyfjunum beint inn í augað, sem getur verið áhættusamt og haft í för með sér óþægindi fyrir sjúklinginn, auk þess sem aukaverkanir eru algengar. Markmið rannsóknarinnar er að ráða bót á þessu með þróun nýrrar örtækni til augnlyfjagjafar. Mynduð verða nanó- og míkrókorn úr sýklódextrínfásykrungum og öðrum hjálparefnum, sem munu, vegna smæðar sinnar og mikillar viðloðunar við slímhimnur, auka flæði lyfja inn í bakhluta augans og verður augnlyfjum komið fyrir í örögnunum."

Phatsawee Jansook

„Með auknum lífslíkum og vaxandi tíðni sykursýki meðal Vesturlandabúa hefur blinda vegna aldurstengdrar hrörnunar augnbotna og sykursýki farið sívaxandi og er nú algengasta ástæða blindu í þróuðum ríkjum."

Phatsawee Jansook

Phatsawee segir að þessi nýja tækni geti hugsanlega gjörbylt meðferð á ýmsum sjúkdómum í augnbotnum, sjónhimnu og sjóntaug. „Ég vonast til að þær aðferðir sem við erum með í þróun sýni fram á að hægt sé að nota sýklódextrín sem burðarefni við lyfjagjöf í auga og að unnt sé að nota þessa aðferð til að auka lyfjaflæði til bakhluta augans. Á þann hátt vonast ég til að hægt sé að mynda lyfjaforða í auganu. Þessi aðferð til lyfjagjafar getur vonandi leyst mörg vandamál tengd meðhöndlun sjúkdóma í bakhluta augans. Henni fylgja mun minni óþægindi fyrir sjúklinginn en öðrum aðferðum og minni aukaverkanir og getur vonandi fækkað þeim sem verða blindir af völdum sjúkdóma í bakhluta augans."

Leiðbeinandi: Þorsteinn Loftsson, prófessor við Lyfjafræðideild.