Björn Agnarsson, doktorsnemi í eðlisfræði
„Verkefnið sem ég er að vinna að nefnist „Þróun nýrrar örflögutækni til ljósörvunar við yfirborð,““ segir Björn Agnarsson, doktorsnemi í eðlisfræði. Markmið verkefnisins er að hanna örflögu sem nýtist í smásjám til að lýsa upp sýni, t.d. til að skoða staðsetningu ákveðinna próteina í frumum. Ljósið frá örflögunni er bundið við yfirborð flögunnar og nær aðeins um 200 nm inn í sýnið.
Með örflögutækninni má því fá lýsingu sem er talsvert frábrugðin þeirri sem notuð er í hefðbundinni ljóssmásjá, þ.e. þar sem lýst er gegnum allt sýnið. Þannig er m.a. hægt að draga verulega úr bakgrunnsljósi, sem kemur fram ef allt sýnið er upplýst, og sjá mun betur hluti og atburði t.d. við frumuhimnur. Aðferðin hentar þess vegna vel til rannsókna á yfirborðsbindingu, efnaflutningi gegnum frumuhimnur, víxlverkun fruma við yfirborð, o.fl.
Björn Agnarsson
Markmið verkefnisins er að hanna örflögu sem nýtist í smásjám til að lýsa upp sýni, t.d. til að skoða staðsetningu ákveðinna próteina í frumum.

Örflögutæknin byggist á því að ljósi er skotið í bylgjuleiðara sem þekur yfirborð flögunnar. Ljósið ferðast eftir yfirborðinu en er bundið í bylgjuleiðarann svo það sést ekki með berum augum. Sýnum, svo sem flúrlituðum frumum, er komið fyrir á flögunni og örvar ljósið aðeins þann hluta sýnisins sem liggur næst yfirborðinu. Að auki má nýta aðferðir sem þekktar eru úr ljósrásatækni samskiptakerfa til að stýra ljósinu á yfirborði flögunnar, t.d. slökkva og kveikja og/eða velja ákveðnar örvunarbylgjulengdir. Með því að bæta við hitastýringu mun tæknin einnig nýtast vel til rannsókna á lifandi frumum.
Vonast er til að flagan geti þjónað margvíslegum tilgangi í framtíðinni, bæði sem lífnemi og sem ný öflug rannsóknaraðferð í frumulíffræði.
Leiðbeinandi: Kristján Leósson, vísindamaður við Raunvísindadeild.