Skip to main content

Lyf gegn sýkingum í munnholi

Peter Holbrook, prófessor við Tannlæknadeild

Flestir kannast við óþægindin sem fylgja sýkingum í munnholi, svo sem munnangri og frunsum. Færri vita hins vegar að innan Háskóla Íslands vinna vísindamenn í tannlæknisfræði og lyfjafræði í sameiningu að rannsóknum í því skyni að þróa lyf til þess að takast á við þessa hvimleiðu gesti. Til þess nota þeir lípíð, sem er flokkur fituefna sem reynst hafa vel í baráttunni gegn bakteríum, veirum og sveppum.

Hugmyndin að rannsóknunum og lyfjaþróuninni kviknaði hjá Peter Holbrook, prófessor í tannlækningum og sérfræðingi í munnlyflæknisfræði. „Ég var að vinna með sjúkling sem hafði ýmis vandamál í munni, eins og munnangur, frunsur, sár í slímhúð í munni, munnþurrk og sveppasýkingu. Það vantaði nokkur lyf hérlendis til að meðhöndla þessa sjúkdóma og jafnframt var klárlega þörf á frekari þróun á þess konar lyfjum,“ segir Peter.

Peter Holbrook

„Ég var að vinna með sjúkling sem hafði ýmis vandamál í munni, eins og munnangur, frunsur, sár í slímhúð í munni, munnþurrk og sveppasýkingu. Það vantaði nokkur lyf hérlendis til að meðhöndla þessa sjúkdóma og jafnframt var klárlega þörf á frekari þróun á þess konar lyfjum.“

Peter Holbrook

Hann hafði því samband við Þórdísi Kristmundsdóttur, prófessor í lyfjafræði. „Samstarf okkar hófst með þróun á lyfinu doxýsýklín í litlum styrkleika. Það virkar ekki sem fúkkalyf heldur hindrar það að tiltekin ensím stuðli að bólgu í slímhúð í munni. Samstarfið hefur verið mjög áhugavert og það jókst þegar Halldór Þormar, prófessor emeritus við Líf- og umhverfisvísindadeild, kom inn í hópinn. Hann hafði reynslu af notkun mónókapríns til að drepa veirur eins og herpes og candida-sveppi, en báðar þessar örverur tengjast algengum sýkingum í munni,“ segir Peter.

Rannsóknirnar hafa staðið lengi yfir og fjölmargir nemendur tekið þátt í þeim í gegnum meistara- og doktorsverkefni sín. Þá var sprotafyrirtækið Líf-Hlaup stofnað á grunni rannsóknanna. „Niðurstöður flestra rannsókna okkar hafa verið birtar í vísindatímaritum og svo fengum við fyrir nokkrum árum viðurkenningu frá International Association for Dental Research og Glaxo Smith Kline fyrir nýsköpun í tengslum við munnheilsu vegna rannsóknanna,“ segir Peter.

Peter bendir á að þörf sé á fleiri lyfjum sem ekki þurfi að sprauta í fólk heldur megi nota í töfluformi, virki staðbundið og hafi jafnframt nægan styrk til þess að lækna sýkingar í munnholi. Rannsóknirnar hafi gengið vel en lyfjaþróun sé flókin og sömuleiðis sé snúið að koma lyfjum á markað. „Við vinnum því enn að því að koma einhverjum af lyfjunum okkar á það stig að þau geti farið á markað,“ segir hann að lokum.