Ása Baldursdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku við Félags- og mannvísindadeild
„Lífið á Facebook: Um formgerð samskipta“ er titill lokaritgerðar Ásu Baldursdóttur, sem útskrifaðist með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá HÍ. Í lokaverkefninu fjallaði hún um boðskipti í íslenskum samtíma þar sem skyggnst er inn í hugarheim ungs fólks og upplifanir þess á rafrænum veruleika og þær mátaðar við félagsfræðilegar kenningar.
Ása Baldursdóttir
Rannsókn Ásu leiddi í ljós að Netið er ekki bara tæknileg framlenging á manninum, eins og margir félagsfræðingar halda fram, heldur býr það til og viðheldur félagslegum böndum á mun hraðvirkari máta.

Aðspurð um umfang og innihald verkefnisins segir Ása það vera tvíþætt; annars vegar er ítarleg umfjöllun um boðskipti í íslenskum samtíma, og hins vegar heimildarmynd þar sem tekin voru viðtöl við íslensk ungmenni og spurt um notkun þeirra á tengslanetinu Facebook. Hún segir hugmyndina að verkefninu hafa sprottið út frá einskærum áhuga á Netinu og samskiptunum sem þar eiga sér stað: „Það er mjög áhugavert að skoða samskipti fólks í dag þar sem þau hafa breyst mikið í gegnum tíðina. Fyrir tilstilli samskiptasíðna eins og Facebook er fólk farið að hafa samskipti við einstaklinga sem það hefði e.t.v. aldrei annars gert í raunheimum.“
Rannsókn Ásu leiddi í ljós að Netið er ekki bara tæknileg framlenging á manninum, eins og margir félagsfræðingar halda fram, heldur býr það til og viðheldur félagslegum böndum á mun hraðvirkari máta. Ása segir að viðmælendur hennar hafi fundið fyrir því. Einnig hafi það endurskapað raunveruleika fólks í samtímanum: „Samskipti á Netinu hafa mikil áhrif á það hvernig fólk á í samskiptum í raunheimum, og þá sérstaklega hvernig það tengist öðrum. Fyrst fámennissamfélagið Ísland á í svona tímafrekum samskiptum þarna inni eins og raun ber vitni, þá er þetta svo sannarlega verðugt rannsóknarefni fyrir fræðasamfélög framtíðarinnar.“
Leiðbeinandi: Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, dósent við Sálfræðideild.