Helena N. Wolimbwa, meistaranemi í félagsráðgjöf
„Sjónarmið hælisleitenda þurfa að koma fram og taka með inn í umræðuna,“ segir Helena N. Wolimbwa sem hefur nýlokið meistararitgerð um hælisleitendur á Íslandi.
Helena N. Wolimbwa
„Málefni hælisleitenda í Íslandi hafa lítið verið rannsökuð þrátt fyrir fjölgun sl. 3 ár. Ég vona að rannsóknin nýtist við framtíðarstefnumótun í þessum málaflokki.“

Áhugi Helenu á fjölmenningu var kveikjan að verkefninu ekki síst vegna þess að faðir hennar, sem er frá Úganda, flúði til Danmerkur í lok áttunda áratugarins. „Málefni hælisleitenda í Íslandi hafa lítið verið rannsökuð þrátt fyrir fjölgun sl. 3 ár. Ég vona að rannsóknin nýtist við framtíðarstefnumótun í þessum málaflokki.“
Meistaraverkefni Helenu heitir „Mig langar bara að lifa eðlilegu lífi“ og vísar til svars eins viðmælanda sem inntur var eftir því hvers hann vænti í framtíðinni. Hælisleitendur bíða oftast eftir úrskurði stjórnvalda í um eitt ár frá því að umsóknarferlið hefst en þess eru dæmi að það hafi tekið sex ár.
Vonir Helenu standa til þess að starfa í þessum málaflokki við rannsóknir eða þjónustu við hælisleitendur í framtíðinni. „Best er að hefja störf á vettvangi sem fyrst en síðar langar mig hiklaust til að halda áfram að rannsaka málefni innflytjenda,“ segir Helena einbeitt.
Leiðbeinandi: Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild.