Skip to main content

Kynjuð fjármál breyta kerfum

Finnborg Salome Steinþórsdóttir, doktorsnemi við Stjórnmálafræðideild

„Kynjuð fjármál í háskólum eru algjörlega glænýtt fyrirbæri þannig að fyrsta verkefnið var að kortleggja þessa skóla,“ segir Finnborg Salome Steinþórsdóttir, doktorsnemi í kynjafræði. Finnborg hafði ekki ætlað sér í doktorsnám en greip gæsina þegar auglýstar voru doktorsnámsstöður í kynjafræði. Þar gekk hún inn í GARCIA-rannsóknarverkefnið en það er styrkt af Evrópusambandinu og er samstarfsverkefni sjö háskóla í Evrópu. Verkefnið felst í því að þróa kynjuð fjármál í háskóla- og vísindasamfélaginu.

Kynjuð fjármál kallast sú nálgun að skoða fjármála- og stjórnunarferla út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum. Í doktorsritgerð sinni skoðar Finnborg fjármögnun frá ríki til háskóla og ráðstöfun fjármuna innan Háskóla Íslands. „Þetta snýst í raun um að elta peningana. Ég skoða hvert peningarnir eru að fara, til hvaða fræðasviða þeim er úthlutað, fjárframlög vegna rannsókna og kennslu, rannsóknarstyrki og hvernig fjármagnið seytlar í gegnum kerfið alla leið til stúdentanna.“

Finnborg hefur unnið náið með Háskólanum og segir helsta kostinn við kynjuð fjármál vera þann að þau sé hægt að nota sem tól til að afhjúpa skekkjur í kerfinu og að bjóða upp á leiðir til þess að leiðrétta þær.

Finnborg Salome Steinþórsdóttir

„Þetta snýst í raun um að elta peningana. Ég skoða hvert peningarnir eru að fara, til hvaða fræðasviða þeim er úthlutað, fjárframlög vegna rannsókna og kennslu, rannsóknarstyrki og hvernig fjármagnið seytlar í gegnum kerfið alla leið til stúdentanna.“

Finnborg Salome Steinþórsdóttir

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að margir af þeim ferlum og ákvörðunum sem virðast vera hlutlæg eru í raun mjög kynjuð og umbuni frekar körlum og karlfögum innan skólans. Hún segir þessa rannsókn hafa mikið gildi fyrir bæði vísindin og samfélagið. „Kynjaójafnrétti í háskólum hefur verið rannsakað ítarlega en aldrei frá þessum sjónarhóli; fjármálahliðinni, hvernig fjármálaverkferlar hafa áhrif á jafnrétti,“ segir Finnborg en bætir við að verið sé að afhjúpa hvernig kerfið viðhaldi ákveðnu misrétti, bæði milli kynjanna en einnig milli fræðasviða innan skólans.

Hún vonast til að rannsóknin bjóði upp á tækifæri til að breyta því þótt það sé ekki í hennar höndum heldur stjórnvalda og stjórnenda háskólanna ef þau vilji. „Markmiðið er að breyta kerfum og normum og ég trúi því að þessi leið geti gert það. Við þurfum þá öll að vinna að því af fullri alvöru.“

Leiðbeinandi: Þorgerður Einarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild.