Hrönn Smáradóttir, doktorsnemi við Sálfræðideild
„Ég mun prófa árangur af sex vikna hópmeðferð fyrir bráðlynd börn á aldrinum 7 til 11 ára með margvísleg undirliggjandi vandamál. Meðferðin byggist á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og er kennd innan veggja skólans,“ segir Hrönn Smáradóttir um doktorsverkefni sitt í sálfræði.
Hrönn Smáradóttir
„Ég mun prófa árangur af sex vikna hópmeðferð fyrir bráðlynd börn á aldrinum 7 til 11 ára með margvísleg undirliggjandi vandamál. Meðferðin byggist á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og er kennd innan veggja skólans“

Hugmyndin að rannsókninni kviknaði strax í BS-námi Hrannar undir leiðsögn Urðar Njarðvík, lektors við Sálfræðideild. „Urður bauð mér að ljúka meistaraverkefni hjá sér og skoða árangur námskeiðsins „Að stilla skapið sitt,“ sem hún hefur þróað síðastliðin tólf ár. Ég hef alltaf haft áhuga á börnum með ólík vandamál og því vakti þetta strax áhuga minn,“ rifjar Hrönn upp.
Hrönn og Urður hafa í vetur þróað meðferðina betur fyrir eldri börnin og á næsta ári fer hópmeðferð fram. „Fleiri þættir verða skoðaðir, eins og hvort betri árangur fæst með lengri útgáfu meðferðarinnar, átta vikna meðferð í stað sex vikna,“ segir Hrönn. Þá verður kannað hvort meiri árangur næst ef foreldrar sækja fræðslunámskeið samhliða meðferð barnanna.
Að mati Hrannar er einn stærsti kostur meðferðarúrræðisins sá að tekið er snemma á vandamálum tengdum skapi barna. „Einnig er þetta tilvalið úrræði fyrir börn sem eru að bíða eftir greiningu en biðin eftir henni getur oft verið löng,“ segir Hrönn.
Niðurstöður liggja ekki fyrir, að sögn Hrannar, „en niðurstöður úr MS-náminu, þegar námskeiðið var haldið þá, komu vel út. Þær sýndu að þetta stutta inngrip getur verið árangursrík leið til að bæta hegðun barna sem eiga erfitt með að stjórna skapi sínu. Að mati kennara minnkaði hegðunarvandi þeirra, mótþrói og skapofsi umtalsvert í skólanum eftir meðferðina.“ Áhrifin hafi komið skýrar fram í skólanum en inni á heimilum þar sem meðferðin beinist fyrst og fremst að samskiptum við jafnaldra og viðbrögðum við stríðni og mótlæti í skólanum.
Leiðbeinandi: Urður Njarðvík, lektor við Sálfræðideild.