Þórhallur Guðlaugsson, dósent við Viðskiptafræðideild
Þórhallur Guðlaugsson, dósent í viðskiptafræði, stendur fyrir framan fullan sal af áhugasömu fólki og kynnir fumlaust rannsókn sína um þjónustugæði sem vísi að tryggð. Þjóðarspegillinn: Ráðstefna XI um rannsóknir í félagsvísindum 2010 stendur yfir. Þórhallur segir að tilgangur rannsóknarinnar sé að draga fram tengsl gæða þjónustu, heildaránægju og tryggðar innan Háskóla Íslands.
Þórhallur Guðlaugsson
Þórhallur hefur stundað kennslu og rannsóknir á sviði þjónustustjórnunar frá því árið 1994. Rannsókn hans um þjónustugæði sem vísi að tryggð byggist á gæðakönnun meðal nemenda í grunnnámi við Háskóla Íslands síðastliðin sex ár og mælir ánægju nemendanna með veitta þjónustu.

Þórhallur hefur stundað kennslu og rannsóknir á sviði þjónustustjórnunar frá því árið 1994. Rannsókn hans um þjónustugæði sem vísi að tryggð byggist á gæðakönnun meðal nemenda í grunnnámi við Háskóla Íslands síðastliðin sex ár og mælir ánægju nemendanna með veitta þjónustu.
„Háskólar hafa undanfarin 20 ár aukið áherslu sína á þjónustugæði og oftar en ekki beinast rannsóknirnar að afmarkaðri starfsemi háskólanna,“ segir Þórhallur og bendir á að niðurstöður rannsókna af þessu tagi geti til dæmis leitt til samkeppnisforskots þess háskóla sem niðurstöðurnar koma frá. Fáar rannsóknir hafa þó verið gerðar hvað varðar tengsl þjónustugæða við ánægju og tryggð nemenda eins og áhersla var lögð á í rannsókn Þórhalls.
Þórhallur segir að spurningalisti hafi verið lagður fyrir grunnnema til að kanna þjónustugæði Háskóla Íslands. Í fyrsta hlutanum voru nemendur beðnir um að taka afstöðu til 16 fullyrðinga varðandi þjónustu skólans eða umgjörð hennar. Tengdust spurningarnar meðal annars félagslífi, starfsfólki, aðstöðu, kennslu og námskeiðsgögnum. Í öðrum hlutanum voru nemendurnir beðnir um að taka afstöðu til mikilvægis þeirra 16 atriða sem fyrsti hlutinn tók á og í þriðja hlutanum voru þeir beðnir um að taka afstöðu til Nemendaskrár, Uglunnar og Námsráðgjafar. Einnig var spurt um heildaránægju, hvort viðkomandi myndi mæla með námi við Háskóla Íslands og hvort hann myndi velja skólann aftur ef hann væri að hefja nám núna.
Við úrvinnslu á niðurstöðum úr rannsókninni var meðaltal gæðaþáttanna reiknað út og það síðan notað til að kanna tengsl gæða, heildaránægju og tryggðar. „Mikilvægt er að hafa í huga að þjónustumatið kemur ekki í stað hefðbundinna kennslukannana og ekki var ætlunin að meta hina akademísku kennslu,“ segir Þórhallur að lokum, eftir vel heppnaðan fyrirlestur.