Skip to main content

Feminísk heimspeki brýtur upp hefðir

Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild

Við námsbraut í heimspeki á Hugvísindasviði fer fram öflugt rannsóknastarf á sviði femínískrar heimspeki. Tveir doktorsnemar vinna nú að slíkum rannsóknum og einnig er unnið að ritun inngangsbókar um femíníska heimspeki sem Eyja Margrét Brynjarsdóttir stýrir.

Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki, telur femínískar rannsóknir innan heimspeki meðal áhugaverðustu rannsóknasviða greinarinnar um þessar mundir. „Karlmenn hafa nánast einokað heimspekina í margar aldir og kemur það ljóslega fram í hefðbundnum hugmyndum um manninn. Framlag femínískrar heimspeki er ekki síst fólgið í því að brjóta upp þessa hefð og auðga mannskilning heimspekinnar með því að ganga út frá margbreytileika mannanna,“ segir Sigríður.

Sigríður Þorgeirsdóttir

„Karlmenn hafa nánast einokað heimspekina í margar aldir og kemur það ljóslega fram í hefðbundnum hugmyndum um manninn. Framlag femínískrar heimspeki er ekki síst fólgið í því að brjóta upp þessa hefð og auðga mannskilning heimspekinnar með því að ganga út frá margbreytileika mannanna.“

Sigríður Þorgeirsdóttir

Þar að auk finnst Sigríði femínísk heimspeki langskemmtilegasta greinin innan heimspekinnar nú um stundir. „Hér er hún opnust fyrir heiminum, gagnrýnust og pólitískust í besta skilningi þess orðs. Hún er næm á vald og á það hve berskjaldaðar við manneskjurnar erum. Þessi heimspeki hefur hvað mestan útópískan kraft og reynir einna mest að eygja möguleika á betri heimi,“ segir Sigríður og bætir við að femínísk heimspeki eigi þátt í því að endurnýja hugvísindi með því að leggja áherslu á þverfaglega nálgun, tengsl við veruleikann utan háskólanna og næmi fyrir þróun og breytingu heimsins.

Sameiginlegri meistaranámsbraut í femínískri heimspeki verður hleypt af stokkunum haustið 2015 í samstarfi fimm norrænna háskóla, Háskóla Íslands og háskólanna í Bergen, Linköping, Álaborg og Jyväskylä. „Rannsóknir okkar hér stuðla að því að bjóða upp á gott meistaranám í femínískri heimspeki enda eiga Norðurlöndin að stefna að því að vera sterk á þessu sviði heimspekinnar vegna þeirrar jafnréttishefðar sem þau búa að,“ segir Sigríður að lokum.