Skip to main content

Eðli táknmála og raddmála það sama

Kristín Lena Þorvaldsdóttir, stundakennari við Íslensku- og menningardeild

„Ég er að vinna að verkefni sem fjallar um hugtakanotkun í táknmálsfræði og stuðlar að hagnýtri nýsköpun fyrir Háskóla Íslands. Verkefnið mun nýtast við greinaskrif, íðorðasöfn og kennslu,“ segir Kristín Lena Þorvaldsdóttir, meistaranemi í íslenskri málfræði en hún lauk BA-námi í táknmálsfræði og táknmálstúlkun frá HÍ árið 2007. Kristín Lena hlaut viðurkenningu úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannessonar síðastliðið vor til þess að ljúka við hluta af meistaraverkefni sínu.

Markmið rannsóknaverkefnisins er að taka saman þau grunnhugtök sem notuð hafa verið fram að þessu innan táknmálsfræðinnar, samræma þau, endurskoða og endurskilgreina.

Kristín Lena Þorvaldsdóttir

Markmið rannsóknaverkefnisins er að taka saman þau grunnhugtök sem notuð hafa verið fram að þessu innan táknmálsfræðinnar, samræma þau, endurskoða og endurskilgreina.

Kristín Lena Þorvaldsdóttir

Kristín Lena segir að þetta sé löngu tímabært og að einnig þurfi að leggja í nýyrðasmíð þar sem hennar er þörf. „Samræming hugtaka er afar mikilvæg því þegar ólík hugtök eru notuð yfir sama fyrirbærið getur það valdið þeim misskilningi að þau eigi við ólík fyrirbæri. En í grundvallaratriðum er eðli raddmála og táknmála það sama, að því leyti skarast táknmálsfræði og íslensk málfræði.“

Að sögn Kristínar Lenu verður ávallt að hafa í huga að táknmálum er miðlað á annan hátt en raddmálum. „Skilgreiningar á íslenskum málfræðihugtökum hafa oftar en ekki skírskotun í hljóð eða orð. En þótt fjölmörg hugtök um íslenska málfræði eigi við um hljóð og orð, fremur en hreyfingu og tákn, eru mörg þeirra almenn málvísindaleg hugtök og eiga því jafnt við um raddmál og táknmál. Hugtök í táknmálsfræði eru allmörg fengin að láni úr íslenskri málfræði og henta misvel. Önnur eru fengin úr erlendum málum og löguð að íslensku.“

„Niðurstaða verkefnisins verður nothæf tilraunaútgáfa hugtakabanka sem þróaður verður áfram á grundvelli fræðilegrar umræðu í kennslu og greinaskrifum við Háskóla Íslands,“ segir Kristín Lena að lokum. Skráning hugtakanna og skilgreiningar þeirra hafa verið unnar í samstarfi við Íslenska málfræðifélagið og Orðfræðisvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Leiðbeinandi: Rannveig Sverrisdóttir, lektor í táknmálsfræði.