Skip to main content

Birtingur lék lykilhlutverk

Þröstur Helgason, doktorsnemi við Íslensku- og menningardeild

„Ég held að rannsóknin komi til með að varpa nýju ljósi á það hvernig módernismi þróaðist hér á landi á þessu tímabili, hvaðan hugmyndirnar komu og hvernig þeim var tekið,“ segir Þröstur Helgason stundakennari, annar tveggja ritstjóra Ritsins á Hugvísindasviði og doktorsnemi í bókmenntafræði. Áður ritstýrði Þröstur m.a. Lesbók Morgunblaðsins í níu ár.

Doktorsrannsóknin snýst um tímaritið Birting, sem var öflugasta „litla“ tímaritið á Íslandi á 6. og 7. áratug síðustu aldar, og áhrif þess á bókmennta- og listamenningu Íslendinga. Einar Bragi, ljóðskáld og þýðandi, stofnaði Birting árið 1953. Hann stóð fyrir útgáfunni fyrstu tvö árin og fékk til liðs við sig nokkra útvalda höfunda og listamenn, m.a. Thor Vilhjálmsson og Hörð Ágústsson. Birtingur kom út til ársins 1968. „Tímaritið flutti alþjóðlegan módernisma inn í íslenskt bókmenntakerfi með birtingu efnis þar sem nýjar hugmyndir um bókmenntir, listir og menningu voru kynntar. Tímaritið lék algjört lykilhlutverk í því að kynna módernismann fyrir Íslendingum,“ segir Þröstur.

Þröstur Helgason

Doktorsrannsókn Þrastar snýst um tímaritið Birting, sem var öflugasta „litla“ tímaritið á Íslandi á 6. og 7. áratug síðustu aldar, og áhrif þess á bókmennta- og listamenningu Íslendinga.

Þröstur Helgason

Á heimsvísu voru gefin út um þúsund módernísk tímarit sem öll höfðu það hlutverk að kynna nýja strauma í bókmenntum og listum. „Þau hafa stundum verið kölluð „litlu tímaritin“ vegna þess að þau voru yfirleitt ekki mjög útbreidd og höfðu úr litlu fé að moða. Áhrif þeirra voru hins vegar ekki lítil. Ezra Pound varpaði fram þeirri hugmynd í grein um litlu tímaritin árið 1930 að ritverk sem birtust í þeim hefðu meira gildi til lengri tíma litið en verk sem birtust á öðrum vettvangi. Litlu tímaritin væru nefnilega farvegur fyrir tilraunir sem meginstraumstímarit og bókaútgefendur sinntu lítið.“

„Erlendis komu flest þessara tímarita út á fyrstu þremur áratugum síðustu aldar og því var Pound að fjalla um hefð sem hann hafði átt þátt í að móta sjálfur. Birtingur er eilítið seinna á ferðinni en þessi erlendu tímarit en virkni hans í bókmenntakerfinu er ekki ósvipuð. Birtingur var skurðpunktur gamals og nýs, eins konar átakaöxull í íslenskri menningarsögu,“ segir Þröstur. Hann hyggst ljúka doktorsverkefninu 2013.

Leiðbeinandi: Ástráður Eysteinsson, prófessor og forseti Hugvísindasviðs.