Skip to main content

Barist við bólgur með efnum úr sjávardýrum

Jóna Freysdóttir, prófessor við Læknadeild

Hvað eiga sjálfsofnæmissjúkdómar eins og liðagigt, hjarta- og æðasjúkdómar, Alzheimersjúkdómurinn og krabbamein sameiginlegt? Þetta eru allt sjúkdómar þar sem bólgur koma við sögu og hafa áhrif á framgang sjúkdómsins. Það má því nærri geta hversu mikilvægt það er fyrir bætt lífsgæði sjúklinga að hemja slíkar bólgur með einhverjum hætti en innan Háskólans vinnur hópur vísindamanna að því að finna bólguhemjandi efni sem geta nýst í baráttunni við þessa erfiðu sjúkdóma.

Þeirra á meðal er Jóna Freysdóttir, prófessor í ónæmisfræði, en hún hefur í samstarfi við prófessorana Ingibjörgu Harðardóttur og Sesselju Ómarsdóttur leitað að bólguhamlandi efnum í sjávarhryggleysingjum, eins og svömpum, sem gætu orðið að lyfjasprotum. „Sjávarhryggleysingjar framleiða margbreytileg efni sér til verndar og vaxtar og hafa, þar til á síðustu árum, lítið verið rannsakaðir í þessum tilgangi. Þrátt fyrir það hafa nú þegar verið sett á markaðinn lyf sem eiga rætur að rekja til sjávarhryggleysingja,“ segir Jóna.

Jóna Freysdóttir

„Sjávarhryggleysingjar framleiða margbreytileg efni sér til verndar og vaxtar og hafa, þar til á síðustu árum, lítið verið rannsakaðir í þessum tilgangi.“

Jóna Freysdóttir

Jóna og samstarfskonur hennar hafa nú þegar skimað eftir bólguhamlandi efnum í útdráttum úr nálægt hundrað hryggleysingjum sem Sesselja og hennar samstarfsfólk hefur safnað úr sjónum í kringum Ísland. „Við höfum fundið nokkur efni sem hafa bólguhamlandi áhrif á frumur í rækt. Sumum þeirra hefur ekki verið lýst áður og við höfum skilgreint byggingu þeirra og skoðað með hvaða hætti þau miðla bólguhamlandi áhrifum sínum,“ segir Jóna en þess má geta að vísindahópurinn hlaut Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands árið 2016 fyrir það afrek að ná að einangra hreint efni úr sjávarlífveru sem hefur mikil bólguhemjandi áhrif.

„Við munum í framhaldinu velja eitt eða fleiri lofandi efni til að prófa í bólgulíkani í músum. Vonast er til að eitt eða fleiri þessara efna geti orðið að lyfjasprotum og hugsanlega nýst í meðferð sjúklinga sem þjást af sjúkdómum þar sem bólga kemur við sögu,“ segir Jóna að lokum.