Skip to main content

Bættur stuðningur við börn með námserfiðleika

Sigrún Harðardóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild

„Í ljósi þess að menntun er talin ein mikilvægasta undirstaða lífsgæða fyrir einstaklinga ákvað ég að fara af stað með þessa rannsókn til að skýra nánar samspil þeirra þátta sem hafa áhrif og varða sálfélagslega aðlögun þessara nemenda innan skóla,“ segir Sigrún Harðardóttir, lektor í félagsráðgjöf, sem rannsakar nú þjónustu við börn með námserfiðleika.

Sigrún Harðardóttir

„Niðurstöður doktorsrannsóknar minnar sýndu að nemendur sem glíma við erfiðleika í námi búa við slakari sálfélagslega líðan en aðrir nemendur og hverfa frekar frá námi þegar í framhaldsskóla er komið.“

Sigrún Harðardóttir

Rannsókn hennar snýst um að varpa ljósi á hvað er vel gert og hvað má betur fara í stuðningi við börn sem eiga í erfiðleikum í námi vegna einhvers konar raskana og/eða félagslegra aðstæðna. „Niðurstöður doktorsrannsóknar minnar sýndu að nemendur sem glíma við erfiðleika í námi búa við slakari sálfélagslega líðan en aðrir nemendur og hverfa frekar frá námi þegar í framhaldsskóla er komið. Slíkar niðurstöður vekja upp spurningar um hvaða hlutverki skólinn og aðrar velferðarstofnanir gegna í því sambandi að mæta þörfum nemenda,“ segir Sigrún.

Fyrstu niðurstöður sýna að mikið álag er á heimilum þessara barna vegna heimanáms og kennarar eru líka undir miklu álagi við að mæta fjölþættum þörfum nemenda sökum mikils skorts á úrræðum innan skóla. Sigrún væntir þess að niðurstöðurnar geti nýst við frekari þróun og útfærslu nýrrar skólastefnu sem boðuð var með lögum frá árinu 2008, þar sem áhersla verði lögð á heildrænan stuðning við nemendur sem gengur illa í námi til að tryggja jákvæða námsframvindu þeirra.