Skip to main content

Bætt fiskveiðistjórn ESB

Innan Háskóla Íslands fara sífellt fram fjölbreyttar rannsóknir þar sem vísindamenn úr ólíkum fræðigreinum leiða saman hesta sína til lausnar ýmum vandamálum, stundum í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki utan skólans. Ein þessara rannsókna er verkefnið EcoFishMan. 

„Verkefnið snýst um að þróa og meta aðferðir við stjórn á fiskveiðum sem byggjast á meiri aðkomu hagsmunaaðila en nú tíðkast. Tilgangurinn er að kanna hvaða möguleikar felast í stjórnun sem byggist á því að sett eru fram ákveðin markmið og ákveðnum aðilum, t.d. útgerðarmönnum, eftirlátið að þróa aðferðir til að ná þessum markmiðum. Þessi markmið geta bæði verið líffræðileg, svo sem sjálfbær nýting fiskistofna og sem minnst brottkast, og félagshagfræðileg, t.d. viðunandi laun og arðsemi og sem minnst búseturöskun,“ segir Sveinn Agnarsson, dósent í hagfræði, sem er einn þeirra sem aðild eiga að rannsókninni innan Háskóla Íslands.

Sveinn Agnarsson

„Verkefnið snýst um að þróa og meta aðferðir við stjórn á fiskveiðum sem byggjast á meiri aðkomu hagsmunaaðila en nú tíðkast.“

Sveinn Agnarsson

Rannsóknin er fjármögnuð af sjöundu rannsóknaráætlun Evrópusambandsins og að henni koma 15 aðilar í Evrópu undir forystu Matís. Sveinn tengist verkefninu gegnum Hagfræðistofnun háskólans. „Stofnunin hefur átt aðild að fjölmörgum Evrópuverkefnum sem flest hafa snúist um rannsóknir á sjávarútvegi. Stofnunin hefur getið sér gott orð á þessu sviði og byggt upp tengslanet víða um heim og þetta verkefni er einn árangur þess samstarfs,“ segir Sveinn. 

Verkefnið hófst í mars 2011 og því lýkur vorið 2014. „Undanfarið hafa staðið yfir tilviksrannsóknir á Íslandi og í Skotlandi, á Ítalíu og í Portúgal þar sem skoðaður er árangur þess að stjórna fiskveiðum með samningum sem gerðir eru við tiltekna aðila, t.d. smábátasjómenn á Íslandi,“ segir Sveinn enn fremur. 

Aðspurður um gildi rannsóknarinnar segir Sveinn markmiðið fyrst og fremst að bæta stjórnun fiskveiða innan Evrópusambandsins „með því að taka á ýmsum þeim atriðum sem ESB sjálft hefur bent á að þurfi að laga, svo sem óljósum markmiðum með fiskveiðistefnu sambandsins, skammsýni og því að hagsmunaaðilar beri litla sem enga ábyrgð á stjórninni. Rannsóknin getur bæði bætt stjórn fiskveiða og umgengni um náttúruauðlindir, ásamt því að auka vitund hagsmunaaðila um kosti þess og galla að stjórna fiskveiðum með ákveðnum hætti.“