Skip to main content

Andleg líðan og svefntruflanir

Arndís Valgarðsdóttir, cand. psych. frá Sálfræðideild

Svefninn laðar, líður hjá mér
lífið sem ég lifað hef.
Fólk og furðuverur
hugann baðar, andann hvílir.
Lokbrám mínum læsi uns
vakna endurnærður.

Þannig söng hljómsveitin vinsæla Nýdönsk um svefninn sem við þurfum öll á að halda. Góður nætursvefn er aftur á móti ekki sjálfsagður hlutur og ræðst af ýmsum þáttum. Þetta þekkir Arndís Valgarðsdóttir sem rýndi í þetta flókna fyrirbrigði sem svefninn er í lokaverkefni sínu til cand. psych-prófs í sálfræði.

„Verkefnið er hluti af stærri rannsókn hóps vísindamanna innan Háskólans. Þessi hluti snýst um að kanna hvort árstíðabundinn munur sé á svefnlengd, svefntruflunum, andlegri líðan og lífsgæðum og hvort munur sé á svefntíma íbúa á Austurlandi og Vesturlandi,“ segir Arndís.
 

Arndís Valgarðsdóttir

„Fyrstu niðurstöður sýndu að svefntruflanir voru mun meiri og andleg líðan var verri að vetrarlagi. Rannsóknin sýndi einnig að því meiri sem svefntruflanir voru, þeim mun verri var andleg líðan þátttakenda.“

Arndís Valgarðsdóttir

Kveikjan að rannsókninni var að sögn Arndísar áhugi aðstandenda rannsóknarinnar á svefni og dægursveiflum Íslendinga „í ljósi þess að sólarupprás hér á landi er klukkutíma seinna en hún ætti að vera miðað við hnattstöðu Íslands. Ég hef sjálf áhuga á því hvernig svefn er mikilvæg undirstaða allrar heilsu og vellíðanar og hvernig hann hefur áhrif á allt daglegt líf.“

Arndís og samstarfsfólk hennar lagði könnun fyrir stóran hóp fólks úr þjóðskrá og leitaði svara við svefnvenjum þátttakenda auk þess sem spurt var um líðan fólks. „Fyrstu niðurstöður sýndu að svefntruflanir voru mun meiri og andleg líðan var verri að vetrarlagi. Rannsóknin sýndi einnig að því meiri sem svefntruflanir voru, þeim mun verri var andleg líðan þátttakenda,“ segir Arndís og bendir á að svefntruflanir geti bæði verið afleiðing og orsök andlegrar vanlíðanar, þær geti verið fylgikvillar geðraskana en einnig stuðlað að þróun þeirra.

Rannsóknin sýndi jafnframt að ekki var marktækur munur á svefnlengd eða lífsgæðum á milli árstíða og að Austfirðingar vöknuðu fyrr en íbúar á Vesturlandi á frídögum óháð árstíð og sofnuðu fyrr að vetri.

Arndís segir að niðurstöður um verri andlega líðan á veturna gefi tilefni til að skoða hvað valdi og hvernig hægt sé að bregðast við. „Mikil streita kvenna að vetrarlagi vekur athygli og það þyrfti að kanna hvar hægt er að draga úr streituvaldandi þáttum. Vitneskja um meiri svefntruflanir yfir vetrartímann gefur líka vísbendingar um aukna slysahættu í umferðinni vegna vansvefta ökumanna sem bætist þá við aðra áhættuþætti í vetrarumferð. Til að draga úr svefntruflunum og andlegri vanlíðan gætu breytingar á félagslegu umhverfi verið til bóta, til dæmis með því að seinka staðarklukkunni til að meira samræmi verði við sólarklukku eða seinka vinnu- og skólabyrjun að morgni. Til mikils er að vinna þar sem slíkar breytingar gætu bætt líðan Íslendinga, sérstaklega yfir dimmasta tíma ársins,“ segir Arndís um lærdóminn sem draga má af rannsókninni.

Leiðbeinandi: Ingunn Hansdóttir, dósent við Sálfræðideild.