Skip to main content

Áhrif kvenna á kirkjuna

Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í guðfræði

Ekki eru nema 40 ár síðan fyrsta konan hlaut prestvígslu á Íslandi. Síðan þá hafa konur verið að ryðja sér til rúms innan kirkjunnar, fyrst og fremst með prestvígslum kvenna og fjölgun í hópi presta og útskrifaðra guðfræðinga. Þrátt fyrir að konur hafi ekki verið mjög sýnilegar hér áður fyrr innan kirkjunnar er mjög líklegt að áhrifa þeirra hafi samt sem áður gætt á ýmsan hátt, eins og Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í guðfræði, bendir á, en hún rannsakar málið þessi misserin.

Arnfríður Guðmundsdóttir

„Rannsóknin beinist að þeim áhrifum sem konur höfðu á kirkjuna. Kastljósinu verður beint að konum sem tengdar voru áhrifamönnum innan kirkjunnar í upphafi 20. aldar og þeim áhrifum sem þær höfðu á þessa menn eða í gegnum þá.“

Arnfríður Guðmundsdóttir

„Rannsóknin beinist að þeim áhrifum sem konur höfðu á kirkjuna. Kastljósinu verður beint að konum sem tengdar voru áhrifamönnum innan kirkjunnar í upphafi 20. aldar og þeim áhrifum sem þær höfðu á þessa menn eða í gegnum þá. Um leið ætla ég að skoða hvaða áhrif þessir menn hafi haft á þær en hér er aðallega um að ræða konur sem giftar voru prestum eða biskupum eða voru prests- eða biskupsdætur,“ segir Arnfríður.

Hún bætir því við að prestar hafi á þessum tíma margir látið til sín taka í þjóðfélagsumræðunni og að þeir hafi oft gegnt þingmennsku eða ráðherradómi samhliða kirkjulegri þjónustu. „Það er því verðugt viðfangsefni að rannsaka hvort og þá hvernig kristin trú og kirkjan mótaði afstöðu presta í opinberum málum, sérstaklega varðandi stöðu kvenna sem var mjög í brennidepli á þessum tíma,“ bendir Arnfríður á.

Spurð um niðurstöður segir Arnfríður að margar af þeim konum sem eru til umfjöllunar í rannsóknarverkefninu hafi verið virkar í kvennabaráttunni og því megi gera ráð fyrir að þátttaka þeirra á þeim vettvangi hafi haft áhrif á þeirra nánustu. „Flestar höfðu einnig meiri menntun en venja var um konur á þessum tíma og því frekar forsendur fyrir þær til að beita sér út á við. Þá gegndu nokkrar þeirra opinberum störfum sem gáfu þeim möguleika á að vinna opinberlega í þágu kvenna,“ segir Arnfríður enn fremur.