Skip to main content

Áhersla á þátttöku barna í málum sem þau varða

Hrefna Friðriksdóttir, prófessor við Lagadeild

Á vegum Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni er nú unnið að rannsókn á sjálfræði barna innan heilbrigðisþjónustunnar. Rannsóknin er þverfagleg samvinna Lagadeildar, Hugvísindasviðs og Heilbrigðisvísindasviðs og hefur notið styrks frá Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.

Hrefna Friðriksdóttir

Hrefna telur það afar mikilvægt að rannsaka ítarlega stöðu barna á ólíkum sviðum. Hún segir að fjölmargar spurningar vakni við útfærslu á þátttöku barna í samfélaginu, m.a. um hvenær og hvernig barn á rétt á að ráða sjálft málum sínum til lykta, hver réttarstaða foreldra þess er og hverjar skyldur hins opinbera.

Hrefna Friðriksdóttir

Hrefna Friðriksdóttir, prófessor við Lagadeild, segir aðalmarkmiðið með rannsókninni vera að skoða stöðu barna innan heilbrigðiskerfisins frá ólíkum sjónarhornum með áherslu á sjálfræði, þátttöku barnanna í málefnum sem þau varða og ákvarðanatöku um málefni þeirra. „Á síðustu árum hefur virðing fyrir getu og hæfni barna til ýmissa hluta aukist stigvaxandi. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sem nýverið var lögfestur á Íslandi, hefur verið leiðarljós í þeirri þróun,“ segir hún.

Hrefna telur það afar mikilvægt að rannsaka ítarlega stöðu barna á ólíkum sviðum. Hún segir að fjölmargar spurningar vakni við útfærslu á þátttöku barna í samfélaginu, m.a. um hvenær og hvernig barn á rétt á að ráða sjálft málum sínum til lykta, hver réttarstaða foreldra þess er og hverjar skyldur hins opinbera.

„Það er mjög mikilvægt að móta heildstæða stefnu og samræmda framkvæmd um aðgengi barna að heilbrigðisþjónustu, þátttöku þeirra í þjónustunni sem sjúklinga og ákvarðanatöku um málefni sem varða heilsu þeirra, t.d. ráðgjöf, greiningu, meðferð, lyfjagjöf og aðgerðir af ýmsu tagi innan heilbrigðisgeirans. Að öðrum kosti fá börn ekki notið réttinda sinna til fulls í samfélaginu,“ segir Hrefna. Markmiðið með rannsókninni verði að greina þessa réttarstöðu frá þremur sjónarhornum og bera hana saman við það sem gerist í öðrum löndum, m.a. með því að kanna þekkingu fólks á réttarstöðu barna, viðhorf þess til hennar og hvernig sú réttarstaða er tryggð.

Þrír meistaranemar, hver af sínu fræðasviði, hafa nú verið ráðnir til að vinna að rannsókninni og stefnt er að því að samræmdar niðurstöður liggi fyrir á haustdögum 2014.

Tengt efni