Skip to main content

Að lifa lífinu lifandi lengur

„Markmiðið með rannsókninni er að freista þess að bæta lífsgæði fólks og að sýna fram á það að einstaklingar geti haldið góðri heilsu á efri árum og jafnvel bætt hana." Þetta segir Janus Guðlaugsson M.Ed., íþróttafræðingur og doktorsnemi við íþróttafræðasetrið á Laugarvatni. Hann vinnur nú að viðamikilli rannsókn ásamt fimm meistaranemum innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Rannsóknin snýr að eldri aldurshópum og er meðalaldur fólksins í rannsókninni 78 ár. Hún byggist á sex mánaða íhlutunarrannsókn sem samanstendur af þol- og styrktarþjálfun og fræðslu um mataræði með hliðsjón af markmiðum Lýðheilsustöðvar. Fólkið er mælt fyrir og eftir breyttan lífsstíl, sem og ári eftir að rannsókn lýkur. Það sem meðal annars er rannsakað er hvort þátttakendur bæti þol sitt í formi gönguvegalendar á ákveðnum tíma, auki vöðvastyrk og bæti við vöðvamassa.

„Eldri borgarar verða sífellt fjölmennari hópur í vestrænum samfélögum. Fyrir heilbrigðiskerfi vestrænna ríkja gæti þetta leitt til vandamála og fjárhagserfiðleika, verði ekki fundnar nýjar leiðir til að bæta lýðheilsu þjóða í vestrænum heimi. Þetta hafa sérfræðingar, bæði á Norðurlöndum, í Evrópu og Bandaríkjunum bent á," segir Janus.

Markmið rannsóknarinnar er að koma til móts við þessar þarfir og benda heilbrigðisyfirvöldum á æskilega úrkosti til þess að efla markvisst lýðheilsu eldri aldurshópa hér á landi. „Ef ekki er gripið inn í á annan hátt en gert hefur verið og þannig stuðlað að betri heilsu þessa stækkandi hóps gæti orðið hætta á gjaldþroti í heilbrigðiskerfinu að mati sérfræðinga. Er því mikilvægt að grípa inn í og stuðla að bættri heilsu þessara aldurshópa með markvissum aðgerðum sem tengjast alhliða þjálfun og breyttu mataræði. Bætt heilsa leiðir einnig til þess að fólk í eldri aldurshópum hefur aukna möguleika á því að sjá lengur um sig sjálft og búa lengur í heimahúsum samhliða því að kostnaður heilbrigðiskerfisins minnkar."

Janus Guðlaugsson, aðjunkt í Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild

„Eldri borgarar verða sífellt fjölmennari hópur í vestrænum samfélögum. Fyrir heilbrigðiskerfi vestrænna ríkja gæti þetta leitt til vandamála og fjárhagserfiðleika, verði ekki fundnar nýjar leiðir til að bæta lýðheilsu þjóða í vestrænum heimi. Þetta hafa sérfræðingar, bæði á Norðurlöndum, í Evrópu og Bandaríkjunum bent á,"

Janus Guðlaugsson

Janus hefur stundað doktorsnám um rúmlega tveggja ára skeið en hans aðalleiðbeinandi er dr. Erlingur Jóhannsson prófessor. Þessi rannsókn er óbeint framhald af meistaraverkefni hans um eldri aldurshópa þar sem hann bar saman tvær ólíkar tegundir þjálfunar. Janus var fyrsti nemandinn hér á landi sem lauk meistaranámi á sviði íþrótta frá íslenskum háskóla. Hann segir námið nýtast vel til ýmissa starfa, ekki síst til eflingar á lýðheilsu eldri aldurshópa og vonast til að rannsóknin geti hjálpað til við stefnumótun á þessu sviði.

Janus starfar nú sem lektor við Menntavísindasvið.