Wiki4Women Wikithon

Hvenær
11. mars 2020 18:00 til 20:30
Hvar
Háskólatorg
HT-104
Nánar
Wiki4Women Wikithon
Þann 11. mars næstkomandi verður "Wikithon" þar sem öllum áhugasömum gefst færi á að skrifa nýjar greinar á Wikipedia. Sérstök áhersla verður lögð á skrif greina um konur og hinsegin fólk á íslensku og ensku.
Viðburðurinn fer fram í stofu 104 á Háskólatorgi milli 18:00 og 20:30. Þátttakendur eru beðnir um að mæta með eigin tölvur en flatbökur og gos verða í boði á meðan viðburðinum stendur.
Að viðburðinum standa Femínistafélag Háskóla Íslands, Ada - Hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við HÍ, Jafnréttisnefnd SHÍ, Q – félag hinsegin stúdenta og Háskóli Íslands.