Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands - í beinni útsendingu á netinu

Hátíðasalur
Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands verða afhent þriðjudaginn 12. maí kl. 11 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans. Vegna þeirra reglna um fjölda- og fjarlægðarmörk sem enn eru í gildi verða einungis verðlaunahafar og dómnefnd viðstödd að þessu sinni en athöfninni verður streymt á netinu.
Verðlaunin, sem hétu áður Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, eru nú veitt í 22. sinn en keppnin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Árnason|Faktor, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Auðnu-tæknitorgs.
Alls bárust 38 gildar umsóknir í samkeppnina að þessu sinni sem er metfjöldi. Veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun auk þess sem sigurvegari keppninnar verður valinn úr hópi verðlaunahafa úr ofangreindum flokkum.
Við þetta tilefni mun Martin Ingi Sigurðsson, prófessor við Læknadeild, jafnframt fjalla um verkefni sem læknaneminn Halldór Bjarki Ólafsson vann undir leiðsögn hans og hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í upphafi árs.