Skip to main content

Vinnustofa Orpheus fyrir leiðbeinendur doktorsnema - dagur 1

Vinnustofa Orpheus fyrir leiðbeinendur doktorsnema - dagur 1 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. september 2025 9:00 til 13:30
Hvar 

Eirberg

EIR-301A (3. hæð) Eiríksgötu 34

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dagana 1. og 2. september verður vinnustofa á vegum Orpheus fyrir verðandi og núverandi leiðbeinendur doktorsnema við Heilbrigðisvísindasvið. Hægt er að skrá sig á annan daginn en akademískir starfsmenn eru hvattir til að skrá sig á báða dagana. Reyndir, jafnt sem óreyndir leiðbeinendur, eru hvattir til að skrá sig því breidd í þátttakendahópi styður við fyrirkomulag vinnustofunnar.

Þátttakendur fá þátttökuskírteini frá Orpheus.

Fyrri dagur (1. september): Grunnur að faglegu samstarfi, eftirfylgni með framvindu, val á andmælendum, heilindi í rannsóknarstarfi.

Seinni dagur (2. september): Meðferð ágreinings, lausn deilumála, forysta í ljósi tækniþróunar.

Nánari dagskrá

ATH að þessi færsla á aðeins við fyrri daginn en seinni daginn og skráningu á hann má finna hér.

Markmið ORPHEUS er að auka gæði í menntun á doktorsstigi. Dr. Bob Harris, prófessor og fyrrverandi forseti, og dr. Janet Carton, varaforseti, sem hafa mikla reynslu af leiðbeinendaþjálfun, mótuðu dagskrá vinnustofunnar út frá óskum og ábendingum akademískra starfsmanna við Heilbrigðisvísindasvið. Þátttakendur munu skoða mikilvæg sjónarhorn og aðferðir sem munu bæta leiðbeiningarvinnu og tímastjórnun. Hugað verður að algengum áskorunum og kröfum samtímans og framtíðarinnar. Vinnustofan byggir á gagnvirkum aðferðum og að þátttakendur geti lært af hvor öðrum.