Við kynnum prófessor - Ragnar Pétur Ólafsson

Askja
132
Þann 19. mars flytur Ragnar Pétur Ólafsson, prófessor í sálfræði við Sálfræðideild, fyrirlestur í tilefni af framgangi sínum í stöðu prófessors.
Yfirskrift fyrirlesturins:
Grunnrannsóknir og klínísk sálfræði: Er ekki tími til kominn að tengja?
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 132 í Öskju (hámark 40 pers.) og í streymi: https://eu01web.zoom.us/j/62447104607
Á Heilbrigðisvísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri.
Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum.
Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar.
Allir velkomnir
Þann 19. mars flytur Ragnar Pétur Ólafsson, prófessor í sálfræði, fyrirlestur í tilefni af framgangi sínum.
