Skip to main content

Veiting heiðursdoktorsnafnbóta við Lagadeild

Veiting heiðursdoktorsnafnbóta við Lagadeild - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. maí 2025 16:30 til 18:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hinn 28. maí nk. verður Stefáni Má Stefánssyni og Þorgeiri Örlygssyni veitt heiðurdoktorsnafnbót við Lagadeild Háskóla Íslands. Athöfnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu skólans og hefst kl. 16:30.

Stefán Már hefur átt langan og farsælan starfsferil, sem borgardómari og prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands frá 1975. Kennslu- og rannsóknasvið hans hafa verið á sviði réttarfars, Evrópuréttar, félagaréttar og skattaréttar, eins og mikilvæg fræðirit, bókarkaflar og tímaritsgreinar bera vitni um. Auk starfa innan Háskóla Íslands hefur Stefán Már gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum utan háskólans og tekið virkan þátt í norrænu samstarfi á fræðasviðum sínum um langt skeið. Stefán Már hefur allan sinn starfsferil haft mikinn metnað fyrir hönd Lagadeildar og Háskóla Íslands og sýnt það í verki, deildinni og íslensku samfélagi til hagsbóta.

Þorgeir hefur átt langan og einstakan starfsferil þar sem hann hefur, auk kennslu og rannsókna, gegnt æðstu störfum innan framkvæmdavalds og dómsvalds, bæði hér á landi og við alþjóðlegan dómstól. Má þar nefna að Þorgeir var prófessor við Lagadeild, ráðuneytisstjóri, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg, hæstaréttardómari og forseti Hæstaréttar. Auk þessa hefur Þorgeir gegnt fjölda trúnaðarstarfa innan og utan Háskóla Íslands um árabil. Kennslu- og rannsóknarsvið Þorgeirs hafa einkum verið á sviði kröfuréttar, veðréttar, eignaréttar, alþjóðlegs einkamálaréttar og EES-réttar. Á starfsferli sínum hefur Þorgeir lagt sig fram við að efla tengsl Lagadeildar við íslenskt samfélag.

Það er því einkar vel við hæfi að Stefán Már og Þorgeir verði heiðursdoktorar við Lagadeild Háskóla Íslands.

Hinn 28. maí nk. verður Stefáni Má Stefánssyni og Þorgeiri Örlygssyni veitt heiðurdoktorsnafnbót við Lagadeild Háskóla Íslands. Athöfnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu skólans og hefst kl. 16:30.

Veiting heiðursdoktorsnafnbóta við Lagadeild