Skip to main content

Veiting heiðurdoktorsnafnbótar við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

Veiting heiðurdoktorsnafnbótar við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. ágúst 2021 15:00 til 17:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hinn 24. ágúst verður Önnu Stefánsdóttur, hjúkrunarfræðingi, veitt heiðursdoktorsnafnbót við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Athöfnin fer fram í Hátíðarsal Háskólans og hefst kl. 15.00.

Beint streymi verður frá athöfninni.

Anna Stefánsdóttir hefur um áratugaskeið verið öflugur stuðningsmaður Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands, einkum á sviðum kennslu og rannsókna. Anna var í stjórnunarstöðum á Landspítala mestallan starfsferil sinn, en þar gegndi hún stöðu hjúkrunardeildarstjóra gjörgæsludeildar, framkvæmdastjóra hjúkrunar á handlækningasviði spítalans, hjúkrunarforstjóra og tímabundið stöðu forstjóra Landspítala. Í gegnum þessi störf varð Önnu ljóst að grundvöllur fyrir þróun hjúkrunar- og ljósmóðurfræða væri náin samvinna akademíu og klínísks vettvangs. Aðgengi kennara að klínískum vettvangi og samstarf þeirra við hjúkrunarfræðinga og ljósmæður gerði góðar klínískar rannsóknir mögulegar samhliða hagnýtingu þekkingarinnar og eflingu kennslu á öllum stigum náms.

Það eru fyrst og fremst tveir þættir í störfum Önnu sem eru það mikilvægir að hún er talin þess verðug að hljóta heiðursdoktorsnafnbót Háskóla Íslands. Annars vegar er það aðkoma hennar að tilurð samtengdra starfa kennara við Hjúkrunarfræðideild og Landspítala og hins vegar hlutur hennar í að koma á fót starfsþjálfun til sérfræðingsviðurkenningar í hjúkrunar- og ljómóðurfræði og ráðning hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra með sérfræðingsleyfi í nýjar stöður sérfræðinga á Landspítala. Með þessum aðgerðum skipaði Landspítali sér sess meðal fremstu sambærilegra stofnana á Norðurlöndum hvað það varðar.

Hinn 24. ágúst verður Önnu Stefánsdóttur, hjúkrunarfræðingi, veitt heiðursdoktorsnafnbót við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Athöfnin fer fram í Hátíðarsal Háskólans og hefst kl. 15.00.

Veiting heiðurdoktorsnafnbótar við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands