Útspil ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum vegna COVID-19

Zoom
Hagfræðistofnun stendur fyrir erindi í fjarfundarkerfinu Zoom um útspil ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum vegna COVID-19.
Slóð á viðburðinn: https://bit.ly/3buigeE
Ýmis framlög í fjáraukalögunum sem samþykkt voru 30. mars sl. eru um margt ágæt. Tvennt stingur þó í augun við nánari skoðun. Það fyrra er heimildin upp á 140 milljarða til handa ríkissjóði vegna ríkisábyrgða á lánveitingar án trygginga vegna fyrirgreiðslu Seðlabankans til banka sem þjónusta atvinnulífið. Hitt atriðið, sem er smærra í sniðum en skiptir samt máli, er að ríkisvaldið hefur tekið að sér að greiða auglýsingakostnað fyrir ferðaiðnaðinn í landinu upp á einn og hálfan milljarð til að reyna að koma þeim bisness í gang aftur.
Auk þess má gera athugasemdir við þá hugmynd ríkisstjórnarinnar að ríkissjóður taki að sér launagreiðslur í stórum stíl og greiði allt upp í 75% af launakostnaði fyrirtækja gegnum Atvinnuleysistryggingasjóð.
Fyrirlesari: Þór Saari hagfræðingur og sérfræðingur í skuldastýringu ríkissjóða.
Þór Saari er með M.A. gráðu í hagfræði frá New York University. Starfaði á verðbréfamarkaði þar (Wall Street) í um tvö ár, í Seðlabanka Íslands í fimm ár, Lánasýslu Ríkisins í um fimm ár og samhliða því og síðar í tvö sem ráðgjafi í skuldastýringarmálum hjá OECD í París. Síðan í sex ár sem aðalráðgjafi vegna Afríkuverkefnis OECD í skuldastýringarmálum Afríkuríkja „OECD Project on African Government Debt Management and Bond Markets.“ Þór var alþingismaður fyrir Hreyfinguna, áður Borgarahreyfinguna, frá 2009-2013.
Að erindi loknu verður tími fyrir umræður þar sem tekið verður við spurningum frá þátttakendum.
Þór Saari hagfræðingur og sérfræðingur í skuldastýringu ríkissjóða.
