Skip to main content

UTmessan tíu ára: Háskóli Íslands á UTmessu

UTmessan tíu ára: Háskóli Íslands á UTmessu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. febrúar 2020 10:00 til 17:00
Hvar 

Harpa

Nánar 
Verið öll velkomin

UTmessan verður haldin í tíunda sinn 7. og 8. febrúar í Hörpu

UTmessan er einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum og hefur verið haldin árlega frá árinu 2011. Tilgangurinn er ekki síst til að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin hér á landi. Á UTmessuna mæta öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins og taka þátt með einum eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna sér um hvað tölvuiðnaðurinn snýst.

Á UTmessunni sést fjölbreytileiki upplýsingatækninnar og þar sést svart á hvítu að allir hafa möguleika á að starfa í tölvugeiranum. Starfssviðið er bæði breitt og fjölbreytt og hentar bæði konum og körlum.

Föstudaginn 7. febrúar: Ráðstefna og sýning fyrir fagfólk í upplýsingatækni.

Ráðstefna um nýjungar og það helsta sem er að gerast í tölvugeiranum. Ráðstefnan er ætluð fagfólki um upplýsingatækni svo sem þá sem starfa í eða við tölvumál eða hafa brennandi áhuga á þeim. Sýningarsvæði UTmessunnar er opið ráðstefnugestum allan daginn og þar verða öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins að sýna það sem hæst ber í tölvutækni.

Laugardaginn 8. febrúar: Opið fyrir almenning á sýningu á tölvugeiranum.

Háskóli Íslands býður alla velkomna í heimsókn á UTmessuna,  laugardaginn 8. febrúar, þar sem gestum gefst kostur á að fræðast á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt um tækni og vísindi í háskólasamfélaginu.

Á sýningarsvæði Háskóla Íslands í Silfurbergi A verður fjölbreyttur fróðleikur og skemmtun í boði þar sem gestum UTmessunnar býðst að fræðast um tæknina og vísindin í háskólasamfélaginu frá ýmsum sjónarhornum.

  • Vísindasmiðja Háskólans leiðir gesti inn í leyndardóma vísindanna.
  • Nemendur í Team Spark sýna og fræða gesti um nýja rafmagnsknúna kappaksturbílinn
  • Sjáðu Ísland í öðru ljósi: Hitamyndataka úr flugvél varpar ljósi á umhverfi og náttúru landsins sem ekki sést með berum augum í verkefni sem unnið er af Verkfræðistofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Landmælingar Íslands.
  • Hvað er Örtækni?: Starfsmenn Grein Research fræða gesti um rannsóknir í örtækni og hvernig hún hefur áhrif á okkar daglega líf.
  • Prufaðu tölvuleiki nemenda í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.
  • Prufaðu tölvuleikinn Mína og draumalandið hjá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands..
  • Ertu lagviss eða laglaus? Háskóli Íslands og Íslensk erfðagreining rannsaka tóna- og taktvísi Íslendinga.
  • Neðansjávar fornleifar: Kafaðu að skipsflaki í sýndarveruleika með fornleifafræðinni í Háskóla Íslands
  • Kynntu þér vélar og tæki nemenda í tæknifræði við Háskóla Íslands.
  • Sigurvegarar Legokeppninnar 2019 sýna forritun með Lego og kynna rannsóknaverkefni sitt.
  • Reboot Hack Iceland kynnir nýsköpunarkeppni háskólanema sem haldin verður í Háskóla Íslands 14. til 16. febrúar
  • Ada - hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við HÍ kynnir starfsemi sína

Hönnunarkeppni Háskóla Íslands  fer fram í Silfurbergi B og hefst keppni klukkan 12:00

Hönnunarkeppni Háskóla Íslands er árlegur viðburður sem skipulagður er af nemendum í véla- og iðnaðarverkfræði. Þar hanna keppendur farartæki og keppa á braut sem reynir á hugvit, nýsköpun og frumlegheit til að leysa viðfangsefni brautarinnar. 

Sjáumst í Hörpu á UTmessu

Facebook viðburður Háskóla Íslands á UTmessu

UTmessan fagnar tíu ára afmæli árið 2020

UTmessan tíu ára: Háskóli Íslands á UTmessu