Skip to main content

Úthlutun úr styrktarsjóðum á sviði menntunar- og kennslufræða

Úthlutun úr styrktarsjóðum á sviði menntunar- og kennslufræða - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. júní 2021 15:00 til 16:00
Hvar 

Skáli

Nánar 
Léttar veitingar

Þann 10. júní næstkomandi verður úthlutað úr tveimur styrktarsjóðum á sviði menntunar- og kennslufræða við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Markmið sjóðanna er að efla sérfræðiþekkingu í menntunar- og kennslufræðum. Styrkir verða veittir til sérfræðinga og doktorsnema í menntunar- og kennslufræðum. Boðið verður upp á léttar veitingar við athöfnina.

Verið öll velkomin.

Um Styrktarsjóð Steingríms Arasonar

Sjóður Steingríms Arasonar hét áður Columbia-sjóður en hann var stofnaður með peningagjöf Steingríms Arasonar kennara árið 1939. Steingrímur (1879-1951) lauk kennaraprófi frá Flensborgarskóla árið 1908. Hann stundaði háskólanám í uppeldis- og menntunarfræði, fyrstur Íslendinga, við Teachers College í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum (1915-1920). Hann starfaði við kennslu barna og unglinga í Eyjafirði og Reykjavík en aðalkennslustörf hans voru við Kennaraskólann þar sem hann kenndi í 20 ár. 

Um Styrktar- og rannsóknarsjóð Þuríðar J. Kristjánsdóttur

Styrktar- og rannsóknasjóður Þuríðar J. Kristjánsdóttur var stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands árið 2019. Stofnframlag sjóðsins er gjöf Þuríðar Jóhönnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi prófessors við og aðstoðarrektors Kennaraháskóla Íslands, sem lést árið 2018. Í erfðaskrá sinni arfleiddi hún Háskóla Íslands að húseign sinni og öðrum eigum með það að markmiði að stofna styrktarsjóð.

 

Þann 10. júní næstkomandi verður úthlutað úr tveimur styrktarsjóðum á sviði menntunar- og kennslufræða við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Úthlutun úr styrktarsjóðum á sviði menntunar- og kennslufræða