Úthlutun úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands - streymi

Aðalbygging
Hátíðasalur
Styrkjum verður úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við athöfn í Hátíðasal skólans mánudaginn 30. ágúst kl. 16.30. Aðeins styrkþegar verða viðstaddir athöfnina ásamt rektor og stjórn sjóðsins en streymt verður frá henni fyrir áhugasöm.
Slóð á streymi
Styrkþegarnir eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritað sig til náms við skólann í haust. Við mat á styrkþegum er þó ekki einungis horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi heldur einnig annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Fyrstu styrkirnir voru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands árið 2008 og er nú úthlutað úr honum í 14. sinn.
Styrkirnir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands eru veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands.