Úthlutun úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands - streymi

Aðalbygging
Hátíðasalur
Styrkjum verður úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við athöfn í Hátíðasal mánudaginn 31. ágúst kl. 16.30. Aðeins styrkþegar verða viðstaddir athöfnina ásamt rektor og stjórn sjóðsins en streymt verður frá henni fyrir áhugasöm.
Styrkþegarnir eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritað sig til náms við skólann í haust. Við mat á styrkþegum er þó ekki einungis horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi heldur einnig annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Fyrstu styrkirnir voru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands árið 2008 og er nú úthlutað úr sjóðnum í 13. sinn.
Styrkirnir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands eru veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands.