Tómstundadagurinn 2019
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Í tilefni Tómstundadagsins 2019 standa námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Landssamband eldri borgara fyrir málþingi undir yfirskriftinni Eldri borgarar: Valdefling – Virkni – Lífsgæði. Dagskrá málþingsins samanstendur af erindum frá eldri borgurum, fagfólki á vettvangi sem og fræðafólki og háskólanemum.
Málþinginu er ætlað að skapa samtal milli eldri borgara, fagfólks á vettvangi tómstunda- og félagsmála og háskólasamfélagsins. Áhersla er lögð á mikilvægi virkni og valdeflingar fyrir lífsgæði eldri borgara. Viðfangsefnið er brýnt innan tómstunda- og félagsmálafræðinnar enda vaxandi vettvangur starfandi tómstunda- og félagsmálafræðinga.
Allir eru hjartanlega velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
Málþingsstjórn er í höndum Viðars Eggertssonar, Gráa hernum.
Dagskrá
9:00 Setning málþings
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ
9:10 Aldur er eitt, elli er annað
Ellert B. Schram, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík
9:30 Skiptir aldur máli? Tækifæri og nýsköpun í öldrunarþjónustu
Ingibjörg Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar
9:50 Aging, Physical Activity and Health
Milan Chang, Phd. og lektor við Menntavísindasvið HÍ
10:10 Áhrifaríkir nágrannar: Um búsetu í þjónustuíbúðum fyrir eldri borgara
Andrea Sigurbjörnsdóttir, nemi í tómstunda- og félagsmálafræði og kynjafræði
10:30 Kaffihlé
10:50 Starfslok: Blessun eða bölvun?
Ásdís Magnea Erlendsdóttir Fjeldsted, nemi í tómstunda- og félagsmálafræði
11:10 Sjálfbærni í tómstundastarfi eldri borgara?
Árni Guðmundsson, aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands
11:30 Gleðin við að eldast
Birna Róbertsdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg
11:50 Velferðartækni
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara
12:10 Hlutverk efri áranna?
Jón Ásgeir Kalmansson, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ
12:30 Málþingslit