Skip to main content

Þarf Afríka að fá bóluefni gegn COVID?

Þarf Afríka að fá bóluefni gegn COVID?  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. apríl 2021 17:00 til 18:30
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrirlesari: Dr. Christine Stabell Benn, MD, PhD, DMSc, prófessor í hnattrænni heilsu við Syddansk háskólann í Odense, Danmörku.

 

Dr. Christina Benn mun í fyrirlestri sínum velta þeirri spurningu fyrir sér hvort Afríka þurfi á bóluefnum gegn Covid að halda. Hún byggir þar á reynslu sinni af faraldsfræðilegum rannsóknum á heilbrigðisaðgerðum og áhrifum þeirra á heilsu fólks, m.a. í Bandim heilbrigðisverkefninu í Gíneu-Bissá og Danmörku (www.bandim.org). Hún hefur til dæmis vakið athygli á því að vítamin A og bóluefni hafi s.k. ósértæk áhrif á ónæmiskerfið og kom fram með tilgátu um víxlverkun heilbrigðisaðgerða sem hafi áhrif á það og að þau geti verið mismunandi eftir kyni. Hún hefur einnig leitt líkur að því að þessar víxlverkanir geti haft meiri þýðingu fyrir heilsu fólks en sjálf heilbrigðisaðgerðin. Dr. Benn er höfundur 278 greina í ritrýndum vísindatímaritum og verið leiðbeinandi á þriðja tuga doktorsnema og á fimmta tug meistaranema.

 

Viðburðurinn fer fram á Zoom

 Dr. Christine Stabell Benn

Þarf Afríka að fá bóluefni gegn COVID?