Skip to main content

„Svo bregðast krossbönd – ítrekað“ - Orsakir, afleiðingar og forvarnir hnémeiðsla

„Svo bregðast krossbönd – ítrekað“ - Orsakir, afleiðingar og forvarnir hnémeiðsla - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. júní 2021 12:20 til 12:50
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilbrigðisvísindasvið efnir til opinna fyrirlestra fyrir almenning í tengslum við 20. líf- og heilbrigðivísindaráðstefnuna. Þar verður fjallað um spennandi málefni úr líf- og heilbrigðisvísindum á aðgengilegan hátt. Fyrirlestrunum verður streymt. 

Kristín Briem, prófessor við Námsbraut í sjúkraþjálfun, mun fjalla um orsakir, afleiðingar og forvarnir alvarlegra hnémeiðsla undir yfirskriftinni: 

„Svo bregðast krossbönd – ítrekað“ Orsakir, afleiðingar og forvarnir hnémeiðsla.

Slit á fremra krossbandi í hné eru þau íþróttameiðsli sem fá hvað mesta athygli í fjölmiðlum. Ástæðan er sannarlega sú að þau eru alvarleg og mikið áfall fyrir þá einstaklinga sem fyrir meiðslunum verða og jafnvel líka fyrir þeirra félagslið eða landslið. Meðferð felst langoftast í skurðaðgerð og langri endurhæfingu, en þó ná ekki allir að snúa farsællega aftur á fyrra getustig. Í þessu erindi verður rýnt í ýmsar tegundir rannsókna og fjallað um það hverjir meiðast helst og hvaða afleiðingar slit á fremra krossbandi geta haft til skemmri og lengri tíma. Einstakir áhættuþættir verða skoðaðir sérstaklega og settir í samhengi við þær þjálfunaraðferðir sem helst er verið að nota til að fyrirbyggja þessa afdrifaríku hnéáverka.

Um Kristínu Briem

Kristín Briem er prófessor við Námsbraut í sjúkraþjálfun á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Rannsóknasvið hennar tengist hreyfivísindum og þá sérstaklega hlutlægri greiningu á hreyfingu og athafnagetu mannsins. Helstu rannsóknir Kristínar í dag hafa það að markmiði að auka þekkingu á þróun slitgigtar í hné og draga úr algengi hennar með því að fækka alvarlegum, íþróttatengdum hnémeiðslum.

Kristín starfar m.a. með rannsóknarhópum frá Gautaborgarháskóla við lífaflfræðilegar rannsóknir í tengslum við hásinaslit, og með rannsakendum úr verkfræðideild Háskóla Íslands og frá stoðtækjafyrirtækinu Össuri við rannsóknir í tengslum við þróun gervifóta.

Heimasíða 20. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnunnar

Fylgja ráðstefnunni á Facebook

Kristín Briem, prófessor við Námsbraut í sjúkraþjálfun, mun fjalla um orsakir, afleiðingar og forvarnir alvarlegra hnémeiðsla í opnum fyrirlestri fyrir almenning þann 3. júní kl. 12:20-12:50. Fyrirlesturinn er hluti af dagskrá 20. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnunnar.

„Svo bregðast krossbönd – ítrekað“ - Orsakir, afleiðingar og forvarnir hnémeiðsla