Skip to main content

Sveppaganga í Heiðmörk

Sveppaganga í Heiðmörk - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. ágúst 2021 17:00 til 19:00
Hvar 

Á einkabílum á bílastæði við Rauðhóla.

Nánar 
Heildarfjöldi er 200 manns og því nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku á heimasvæði Ferðafélagsins.
Öll velkomin með skráningar leyfa

Á morgun miðvikudaginn 18. ágúst standa Háskóli Íslands og Ferðafélag barnanna, angi innan Ferðafélags Íslands, fyrir sveppatínslu í landi Heiðmerkur. Sveppir eru algert sælgæti og það sem er skemmtilegast við þá – þeir vaxa villtir í íslenskri náttúru og ekki síst í skóglendi eins og í Heiðmörk. Það er hins vegar afar mikilvægt að þekkja þá ætu frá þeim vondu og jafnvel eitruðu.

Gísli Már Gíslason, prófessor emerítus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, ætlar að leiða göngufólk í allan sannleika um sveppi í göngunni sem er alveg ókeypis. Mæting er kl. 17 á einkabílum á bílastæði við Rauðhóla. Haldið verður í halarófu frá bílastæðinu lengra inn í Heiðmörkina og ætla má að ferðin í heild sinni taki um tvær klst. Gísli Már hvetur fólk til að koma með körfur eða ílát undir fenginn.

Þátttakendur eru hvattir til að huga mjög vandlega að einstaklingsbundnum sóttvörnum og að þessu sinni er heildarfjöldi einungis 200 manns og því nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku á heimasvæði Ferðafélagsins.

Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát fyrir sveppina eins og áður sagði en gangan er hluti af samstarfi Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“ sem hefur staðið frá aldarafmæli skólans árið 2011.

Gísli Már Gíslason, prófessor emerítus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, ætlar að leiða göngufólk í allan sannleika um sveppi í göngunni sem er alveg ókeypis. Mæting er kl. 17 á einkabílum á bílastæði við Rauðhóla.

Sveppaganga í Heiðmörk