Stór mállíkön innan ESB: mun okkur takast það eða ekki?

Veröld - Hús Vigdísar
fyrirlestrarsalur
Aðstandendur evrópska rannsóknarverkefnisins TrustLLM, sem vinna að þróun opinna, traustra og gagnreyndra stórra mállíkana (e. Large Language Models) fyrir germönsk mál, hittast á ráðstefnu dagana 11.-13. júní í Háskóla Íslands. Ráðstefnan verður opin öllum áhugasömum að morgni 11. júní en þá fer fram umræða um máltækni og möguleika stórra mállíkana innan ESB í fyrirlestrasal Veraldar – húss Vigdísar milli kl 9 og 12.
Erindi á fundinum flytja bæði fulltrúar úr stjórnmálum og hópi innlendra og erlendra fræðimanna og fyrirtækja á sviði stórra mállíkana og máltækni.
Dagskrá fundarins má finna á vef rannsóknarverkefnisins en nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.