Starfsval í viðjum staðalímynda

Heilbrigðisvísindasvið HA, hjúkrunarfræðideild HÍ, jafnréttisfulltrúi HÍ, jafnréttisnefnd Landspítala og Menntavísindasvið HÍ efna til málþings um kynjað starfsval í viðjum staðalímynda.
Dagskráin er eftirfarandi:
14.00 – 14.05: Setning málþings. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
14.05 – 14.25: Slá á einkenni eða mæta undirliggjandi vanda. Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, kynjafræðingur og aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ.
14.25 – 14.40: Fjölgun karlmanna í hjúkrunarfræði; til hvers og hvernig? Gísli Kort Kristófersson dósent í hjúkrunarfræði við HA.
14.40 – 14.55 : Stelpur og tækni - átak Háskólans í Reykjavík til að auka áhuga kvenna á tækninámi. Þórunn Hilda Jónsdóttir verkefna- og viðburðastjóri í HR.
14.55 – 15.10: Reynsla, upplifun og frásagnir kennslukarla. Andri Rafn Ottesen, kennslukarl í Garðaskóla.
15.10 – 15.40: Umræður.
Fundarstjóri: Þórður Kristinsson kennari og doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Viðburðurinn er rafrænn.
Jafnréttisdagar 2021
