Skip to main content

Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár

Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. janúar 2020 12:00 til 13:00
Hvar 

Háskólatorg

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Útgáfa desemberheftis Tímarits um viðskipti og efnahagsmál.

Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár

 Útgáfuboð og málstofa í tilefni af útkomu 2. tbl. 16. árg. Tímarits um viðskipti og efnahagsmál (www.efnahagsmal.is) verður haldið fimmtudaginn 9. janúar, kl. 12.00-13.00, í stofu 101 á Háskólatorgi (Ingjaldsstofa), í Háskóla Íslands.

 Frummælendur eru Axel Hall, lektor við Háskólann í Reykjavík, og Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ.

Útgáfuboðið er unnið í samstarfi við ASÍ, og mun rýna í núverandi skattkerfi tekjuskatts sem hefur verið við lýði frá upptöku staðgreiðslunnar 1988. Skattkerfið verður greint, eiginleikum þess lýst og fjallað um fyrirhugaðar breytingar á því. Fyrirspurnir og umræður verða að erindum loknum, og síðan verður boðið upp á kaffiveitingar. Öll velkomin.

 Dagskrá fyrir málstofuna:

12.00 – Gylfi Zoega, formaður ritstjórnar TVE, býður gesti velkomna

12.05 – Axel Hall, höfundar greinarinnar Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár

12.20 – Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ

12.30-13.00 – Spurningar úr sal

Útgáfuhóf desemberheftis Tímarits um viðskipti og efnahagsmál

Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár