Skip to main content

Skattalegt umhverfi þriðja geirans eflt: Málþing Almannaheilla og Vaxandi

Skattalegt umhverfi þriðja geirans eflt: Málþing Almannaheilla og Vaxandi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. febrúar 2021 12:00 til 13:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nú er til umræðu frumvarp til laga sem felur í sér breytingar á ýmsum

lögum um skatta og gjöld með það að leiðarljósi að styrkja og efla

skattalegt umhverfi þeirra lögaðila sem starfa til almannaheilla og falla

undir svonefndan þriðja geira.

 

Á rafrænu málþingi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans og Vaxandi,

miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun hjá Háskóla Íslands, 11.

febrúar nk. verður frumvarpið í brennidepli. Fjármálaráðaherra

ávarpar málþingið, efni frumvarpsins verður kynnt og í lokin verða

umræður.

 

Stjórnvöld hafa stutt við samstarfsverkefni Almannaheilla og Vaxandi. Í

þeim tilgangi að efla félagslegt frumkvöðlastarf og samfélagslega

nýsköpun hafa ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar,

formaður Almannaheilla og rektor Háskóla Íslands skrifað undir

sameiginlega viljayfirlýsingu þess efnis.

 

Dagskrá málþings er sem hér segir:

1. Setning málþings, Ómar H. Kristmundsson, prófessor

2. Ávarp Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra

3. Kynning á frumvarpinu, Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla

4. Umræður

Hér er hlekkur á viðburðinn

Skattalegt umhverfi þriðja geirans eflt: Rafrænt málþing Almannaheilla og Vaxandi

Skattalegt umhverfi þriðja geirans eflt: Málþing Almannaheilla og Vaxandi