Skip to main content

Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum

Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. maí 2025 9:00 til 17:00
Hvar 

Edda

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG) verður haldin í Eddu, húsi íslenskunnar, föstudaginn 30. maí 2025. Þar verður fjallað um áhrif menningar og skapandi greina á samfélags- og efnahagslega nýsköpun í landsbyggðum. Varpað verður ljósi á mikilvægi frumkvöðla og staðbundna þróun til að stuðla að sjálfbærni og þrautseigju í jaðarbyggðum.

RSG stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Árnastofnun og rannsóknarverkefnið IN SITU sem er styrkt af Horizon Europe og fjallar um áhrif menningar og skapandi greina á svæðisbundna nýsköpun í landsbyggðum.

Ráðstefnan fer fram á ensku og fer einnig fram í streymi á Facebook-viðburði ráðstefnunnar.

Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG) verður haldin í Eddu, húsi íslenskunnar, föstudaginn 30. maí 2025.

Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum