Sjálfbærnidagur BEST og IAESTE

Askja
N-132
BEST, IAESTE og Verkfræði- og Náttúruvísindasvið Háskóla Íslands standa saman að Sjálfbærnidegi BEST og IAESTE þann 27. maí.
Á deginum verður boðið upp á kynningar frá nokkrum fyrirtækjum um verkefni og lausnir varðandi sjálfbærni og loftslagsmál.
_____________________________________________________
Dagskrá: (Dagskrá í PDF)
12:40 - Carbfix - Kári Helgason
Kári sá um rekstur rannsókna- og þróunarverkefna hjá Orkuveitu
Reykjavíkur áður en hann gekk til liðs við Carbfix þegar fyrirtækið var stofnað sem dótturfyrirtæki OR. Þar vinnur hann að frekari þróun á Carbfix tækninni auk þess innleiða hana sem loftslagslausn á stórum skala á heimsvísu. Kári er stjarneðlisfræðingur að mennt og hefur unnið á þeim vettvangi bæði hjá NASA í Bandaríkjunum og við Max Planck
stjarnvísindastofnunina í Þýskalandi.
13:10 - BEST
BEST stendur fyrir Board of European Students of Technology. Við erum þver-evrópsk nemendasamtök með hópa í yfir 30 löndum sem bjóðum upp á námskeið, keppnir og ráðstefnur fyrir nemendur í tækni og vísindum um alla álfuna. Markmið okkar er að efla tengsl tækninema í Evrópu og auka samvinnu milli nemenda, háskóla og fyrirtækja.
13:30 - Ölgerðin - Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir
Ölgerðin hefur mikinn metnað á sviði sjálfbærni og er markvisst að innleiða sjálfbærni í menningu fyrirtækisins. Frá árinu 2016 hefur Ölgerðin minnkað kolefnissporið frá rekstri um 65% og hefur farið í stór verkefni til að ná þeim árangri. Viðskiptavinir og neytendur Ölgerðarinnar gera kröfu um að eiga viðskipti við fyrirtæki sem vinna að sjálfbærni í allri sinni virðiskeðju og er sjálfbærni eitt af megináherslu í nýrri stefnu fyrirtækisins til 2024.
14:00 - Hlé
14:30 - Orf Genetics - Jón Már Björnsson
ORF Líftækni er í fararbroddi í heiminum í framleiðslu frumuvaka í plöntum. ORF framleiðir manna- og dýrafrumuvaka í fræjum erfðabreyttra byggplantna og hreinsaðir frumuvakar eru markaðssettir inn á lífvísinda- og húðvörumarkað. Í fyrirlestrinum verður sagt frá framleiðslu frumuvaka fyrir nýjan, ört vaxandi markað þar sem markmiðið er að frumurækta kjöt fyrir almenning og draga þar með verulega úr neikvæðum umhverfisáhrifum hefðbundinnar dýraræktunnar.
15:00 - IAESTE
IAESTE eru alþjóðleg samtök fyrir nemendur og vinnuveitendur sem eru virk í meira en 80 löndum. Aðalmarkmið IAESTE eru að tengja vinnuveitendur við suma af bestu námsmönnum heimsins og að veita námsmönnum tækifæri á að fara í starfsnám erlendis og afla sér dýrmætrar reynslu.
15:20 - Norðurál - Steinunn Dögg Stephensen
Steinunn Dögg Steinsen framkvæmdastjóri Öryggis- og Umhverfissvið Norðuráls mun tala um þau skref sem stórt iðnfyrirtæki á borð við Norðurál hafa tekið og geta tekið í átt að aukinni sjálfbærni.
____________________________________________________
Hægt verður að taka þátt í persónu í stofu N-132 í Öskju með því að SKRÁ SIG HÉR.
Kynningarnar eru einnig aðgengilegar á Zoom (PW:918595)
BEST stendur fyrir Board of European Students of Technology. IAESTE eru alþjóðleg samtök fyrir nemendur og vinnuveitendur sem eru virk í meira en 80 löndum.
